Tawakkol Abdul-Salam Karman (f.
7. febrúar 1979) er jemenskur blaðamaður, stjórnmálamaður og mannréttindafrömuður. Hún leiðir samtök Blaðakvenna án hlekkja, sem hún tók þátt í að stofna árið 2005. Karman var sæmd friðarverðlaunum Nóbels árið 2011 ásamt Ellen Johnson Sirleaf og Leymah Gbowee fyrir friðsamlega baráttu sína fyrir lýðræði og mannréttindum í Jemen í aðdraganda arabíska vorsins. Karman hefur verið kölluð „járnkonan“, „móðir byltingarinnar“ og „andi jemensku byltingarinnar“.
Tawakkol Karman توكل كرمان | |
---|---|
Fædd | 7. febrúar 1979 Taizz, Jemen |
Þjóðerni | Jemensk (með tyrkneskan ríkisborgararétt) |
Menntun | Háskólinn í Sana |
Störf | Blaðamaður, stjórnmálamaður, aðgerðasinni |
Trú | Íslam |
Maki | Múhameð Al-Nehmi |
Börn | 3 |
Verðlaun | Friðarverðlaun Nóbels (2011) |
Tawakkol Karman tók þátt í því að stofna samtökin Blaðakonur án hlekkja árið 2005 ásamt sjö öðrum blaðakonum. Yfirlýst markmið samtakanna var að greiða veg mannréttinda, „sér í lagi skoðana- og tjáningarfrelsis og lýðræðisréttinda“. Frá árinu 2006 var Karman hávær gagnrýnandi forseta Jemens, einræðisherrans Ali Abdullah Saleh, og lenti oft í kast við yfirvöld vegna andófsaðgerða sinna.
Karman sat frá árinu 2007 til 2011 í ráðgjafarráði stjórnmálaflokksins Al-Islah, sem er systurflokkur íslamistasamtakanna Bræðralags múslima. Karman hefur neitað því að bræðralagið sé afturhaldssamt, líkt og það er gjarnan sakað um að vera. Hún hefur bent á að í Jemen séu allir flokkar íslamskir og að nauðsynlegt sé að berjast gegn afturhaldssamari trúartúlkunum þeirra innan frá.
Í byrjun arabíska vorsins leiddi Karman mótmæli í höfuðborg Jemens, Sana, til þess að sýna mótmælendahreyfingum sem þá voru risnar upp í Túnis og Egyptalandi stuðning. Karman var handtekin á heimili sínu þann 23. janúar árið 2011 vegna mótmæla gegn ríkisstjórn Saleh. Henni var sleppt eftir fjöldamótmæli sem hófust með jemensku jasmínbyltingunni. Eftir að Saleh var steypt af stóli í jasmínbyltingunni og áður en borgastyrjöldin í Jemen hófst árið 2015 lagði Karman áherslu á mikilvægi þess að byggja upp ríki þar sem „jafnrétti, réttlæti, góð stjórnun, mannréttindi, lýðræði, friður og lögmál réttarríkisins“ væru höfð að leiðarljósi. Í því millibilsástandi sem ríkti í Jemen eftir fall Saleh jókst tjáningarfrelsi í Jemen talsvert og Karman taldi það helsta ávinninginn af baráttunni. Jafnframt jókst þátttaka kvenna í stjórnmálum og áhersla á hefðbundin kynhlutverk kvenna minnkaði þar sem þátttaka kvenna hafði skipt sköpum í mótmælunum sem steyptu stjórn Saleh.
Karman var sæmd friðarverðlaunum Nóbels árið 2011 ásamt Ellen Johnson Sirleaf og Leymah Gbowee fyrir störf sín í þágu friðar og mannréttinda í Jemen. Þegar hún frétti af ákvörðun Nóbelsnefndarinnar um að sæma hana verðlaununum var Karman stödd í mótmælendabúðum á Torgi breytinga í Sana. Karman var fyrsta arabíska konan sem hlaut Nóbelsverðlaunin og þegar hún hlaut friðarverðlaunin var hún jafnframt yngsti handhafi þeirra frá upphafi. Síðan þá hafa Nóbelsverðlaunahafarnir Malala Yousafzai og Nadia Murad slegið aldursmet hennar.
Karman kom til Íslands í október árið 2017 og flutti fyrirlestur á Höfða friðarsetri þar sem hún fjallaði um ástandið í Jemen eftir að borgarastyrjöld braust þar út árið 2015. Þann 4. febrúar árið 2018 sakaði Karman stjórnvöld Sádi-Arabíu og Sameinuðu arabísku furstadæmanna um að heyja innrásarstríð gegn Jemen með því að nota borgarastyrjöldina sem tylliástæðu. Ummæli hennar ollu því að hún var rekin úr stjórnmálaflokki sínum. Hún ítrekaði ummæli sín stuttu síðar og ásakaði hernaðarbandalag Sáda um að hafa notfært sér uppreisn Húta í Jemen til þess að hertaka landið og ná stjórn á forsetanum.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Tawakkol Karman, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.