Steingrímur Jóhannesson

Steingrímur Jóhannesson (14.

júní">14. júní 19731. mars 2012) var íslenskur knattspyrnumaður sem fæddur var í Vestmannaeyjum. Um leið og Steingrímur hafði aldur til hóf hann að leika knattspyrnu og síðar handknattleik með Íþróttafélaginu Þór. Þá stundaði Steingrímur einnig frjálsar íþróttir með Ungmennafélaginu Óðni. Fljótlega var ljóst að ómældir hæfileikar og fjölhæfni bjuggu í drengnum. Knattspyrnan varð fyrir valinu og þar bar Steingrímur af. Hann hóf að leika með meistaraflokki ÍBV á unglingsaldri og lék með félaginu óslitið í rúman áratug.

Steingrímur Jóhannesson
Upplýsingar
Fullt nafn Steingrímur Jóhannesson
Fæðingardagur 14. júní 1973(1973-06-14)
Fæðingarstaður    Vestmannaeyjar, Ísland
Dánardagur    1. mars 2012
Dánarstaður    Reykjavík, Ísland
Hæð 1.80 m (5ft 10in)
Leikstaða Framherji
Yngriflokkaferill
Steingrímur Jóhannesson ÍBV
Meistaraflokksferill1
Ár Lið Leikir (mörk)
1991-2000 Steingrímur Jóhannesson ÍBV 150 (61)
2001-2003 Steingrímur Jóhannesson Fylkir 32 (8)
2003-2004 Steingrímur Jóhannesson ÍBV 14(4)
2004 Steingrímur Jóhannesson KFS 1 (0)
2004-2005 Steingrímur Jóhannesson ÍBV 25 (6)
2006 Steingrímur Jóhannesson Selfoss 16 (5)
2007-2008 Steingrímur Jóhannesson KFS 9 (8)
Landsliðsferill2
1994-1995
1998
Ísland U-21
Ísland
2 (0)
1 (0)

1 Leikir með meistaraflokkum og mörk
talið í aðaldeild liðsins og
síðast uppfært 12. mars 2012.
2 Landsliðsleikir og mörk uppfærð
12. mars 2012.

Knattspyrnuferillinn

Steingrímur spilaði lengst af ferilsins með ÍBV og varð tvívegis Íslandsmeistari með ÍBV, 1997 og 1998 þegar ÍBV sigraði tvöfalt.
Hann var markakóngur efstu deildar árin 1998 og 1999.
Litlu munaði að hann endurtæki leikinn með Fylki aðeins fjórum árum seinna þegar aðeins tveimur stigum munaði síðan að hann yrði einnig Íslandsmeistari með Fylki árið 2002 en það ár varð hann bikarmeistari með Fylki.

Tímabilið eftir ferilinn

Síðar lék Steingrímur með liði Selfoss og þá lá leiðin aftur til Vestmannaeyja þar sem Steingrímur lék með ÍBV og KFS. Steingrímur lék samtals 221 leik í efstu deild og skoraði í þeim leikjum 81 mark. Þá lék hann einn A-landsleik og þrjá leiki fyrir U-21-landsliðið.

Veikindi

Steingrímur greindist með krabbamein árið 2011 hann lést af völdum þess 1. mars 2012 aðeins 38 ára að aldri.

Tilvísanir

Heimildir

  • Minningargrein ÍBV Íþróttafélags í morgunblaðinu 12. mars 2012
  • http://ksi.is
Steingrímur Jóhannesson   Þetta æviágrip er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Tags:

Steingrímur Jóhannesson KnattspyrnuferillinnSteingrímur Jóhannesson Tímabilið eftir ferilinnSteingrímur Jóhannesson VeikindiSteingrímur Jóhannesson TilvísanirSteingrímur Jóhannesson HeimildirSteingrímur Jóhannesson1. mars14. júní19732012KnattspyrnaUngmennafélagið ÓðinnVestmannaeyjarÍsland

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

UrriðiÍslenskir stjórnmálaflokkarLatibærÍbúar á ÍslandiListi yfir forseta BandaríkjannaFagridalurLandhelgisgæsla ÍslandsLatínaMillimetriAfríkaSilungurFrjálst efniStuðlabandiðJónsbókFinnlandYÍslenskar mállýskurLjóðstafirDonald TrumpKríaKrummi svaf í klettagjáPetró PorosjenkoISO 8601Páll Óskar2004LátrabjargBerlínListi yfir elstu manneskjur á ÍslandiStofn (málfræði)TékklandJesúsHjartaHeimsmeistari (skák)StykkishólmurKaupmannahöfnTeknetínEggjastokkarRíkisútvarpiðSpánnFlateyriÞýskalandFornafnLaxdæla sagaÍslendingasögurVera IllugadóttirTorfbærSiglufjörðurBerklarSteven SeagalVistarbandiðDrekkingarhylurPóllandThe Open UniversityPortúgalGuðmundur Ingi ÞorvaldssonAuðunn rauðiNorður-AmeríkaÍslenska karlalandsliðið í knattspyrnuKjördæmi ÍslandsBarnafoss2007HraunMúmínálfarnirEinmánuðurÆgishjálmurNorðurlöndinÖlfusáNúmeraplataKúariðaÖnundarfjörðurAlþingiskosningarKári StefánssonUpplýsinginBjörk GuðmundsdóttirOstur🡆 More