Rebecca Pidgeon (fædd 10.
október">10. október 1965) er ensk leikkona, söngvari og lagahöfundur sem er þekktust fyrir hlutverk sín í The Unit og Red.
Rebecca Pidgeon | |
---|---|
Upplýsingar | |
Fædd | Rebecca Pidgeon 10. október 1965 |
Ár virk | 1987 - |
Helstu hlutverk | |
Charlotte Ryan í The Unit Cynthia Wilkes í Red |
Pidgeon fæddist í Cambridge, Massachusetts en ólst upp í Edinborg, Skotlandi. Stundaði nám við Royal Academy of Dramatic Arts í London.
Pidgeon giftist handritshöfundinum og leikstjóranum David Mamet árið 1991 og saman eiga þau tvö börn.
Pidgeon var meðlimur hljómsveitarinnar Ruby Blue frá 1986-1990. Fyrsta sólóplata hennar Raven kom út árið 1994 og hefur hún síðan þá gefið út fimm sólóplötur. Pidgeon samdi tónlistina við kvikmyndinna Oleanna sem kom út árið 1994, ásamt því þá hefur hún samið lag við kvikmyndirnar The Misadventures of Margaret og Redbelt.
Pidgeon kom fyrst fram í leikhúsi árið 1992 í Oleanna sem var samið af eiginmanni hennar David Mamet og var sýnt við Orpheum Theater í New York. Hefur hún síðan þá komið fram í leikritunum Dangerous Corner og The Old Neighborhood.
Fyrsta sjónvarpshlutverk Pidgeon var árið 1987 í Bust og hefur hún síðan þá komið fram sem gestaleikari í þáttum á borð við Screen One, The Shield og Glenn Martin DDS. Árið 2006 var henni boðið stórt gestahlutverk í The Unit sem Charlotte Ryan, eiginkona Tom Ryan, sem hún lék til ársins 2009.
Fyrsta kvikmyndahlutverk Pidgeon var árið 1988 í The Dawning. Síðan þá hefur hún komið fram í kvikmyndum á borð við The Spanish Prisoner, State and Main, Shopgirl og Red.
Kvikmyndir | |||
---|---|---|---|
Ár | Kvikmynd | Hlutverk | Athugasemd |
1988 | The Dawning | Nancy Gulliver | |
1991 | Homicide | Miss Klein | |
1997 | The Spanish Prisoner | Susan Ricci | |
1999 | The Winslow Boy | Catherine Winslow | |
2000 | Catastrophe | Aðstoðarmaður forstjóra | |
2000 | State and Main | Ann | |
2001 | Heist | Fran Moore | |
2002 | Advice and Dissent | Ellen Goldman | |
2005 | Edmond | Eiginkona | |
2005 | Shopgirl | Christie Richards | |
2006 | Provoked: A True Story | Miriam | |
2008 | How to Be | Móðir | |
2008 | Redbelt | Zena Frank | |
2008 | Cat City | Victoria Compton | |
2009 | The Lodger | Dr. Jessica Westmin | |
2010 | Red | Cynthia Wilkes | |
2010 | Two Painters | Kynnir | |
Sjónvarp | |||
Ár | Titill | Hlutverk | Athugasemd |
1987 | Bust | Sarah | 2 þættir |
1988 | Campaign | Sally Byfleet | ónefndir þættir |
1989 | Screen One | Ung Lillian | Þáttur: She´s Been Away |
1991 | Uncle Vanya | Sonya | Sjónvarpsmynd |
1992 | The Water Engine | Connie | Sjónvarpsmynd |
2004-2005 | The Shield | Joanna Faulks | 3 þættir |
2006 | In Justice | Charlotte Conti | 3 þættir |
2006-2009 | The Unit | Charlotte Ryan | 14 þættir |
2010 | Glenn Martin DDS | ónefnt hlutverk | Þáttur: Jackie of All Trades Talaði inn á |
|
|
Chlotrudis-verðlaunin
Florida Film Critics Circle-verðlaunin
National Board of Review, USA
Online Film Cricts Society-verðlaunin
Phoenix Film Critics Society-verðlaunin
Satellite-verðlaunin
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Rebecca Pidgeon, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.