Olís

Olís (upphaflega Olíuverzlun Íslands hf.) er fyrirtæki sem sér um dreifingu eldsneytis og smurolíu, ásamt smásölu, þjónustu við sjávarútveg, landbúnað, flug, bílaleigur, smurstöðvar og ýmiskonar iðnað.

Félagið var stofnað 3. október 1927 og er eitt af 30 stærstu fyrirtækjum landsins samanlagðan starfsmannafjölda upp á 420 manns. Olís rekur einnig sjálfsafgreiðslubensínstöðvar undir merkinu ÓB - ódýrt bensín.

Olís ehf
Merki Olís síðan 2022
Rekstrarform Einkahlutafélag
Slagorð Vinur við veginn
Hjáheiti Olíuverzlun Íslands
Stofnað 3. október [1927]]
Staðsetning Reykjavík, Ísland
Starfsemi Eldsneytissala

Smásala

Dótturfyrirtæki ÓB - ódýrt bensín
Starfsfólk 420
Vefsíða Olis.is

Árið 1999 keypti Olís allt hlutafé í Ellingsen og var það sameinað móðurfyrirtækinu árið 2001. Meðal annarra dótturfyrirtækja má nefna Hátækni og Ísmar. Erlendur birgir olíu fyrir Olís er BP. Samkeppniseftirlitið metur markaðshlutdeild Olís á bilinu 25-30%. Allt hlutafé Olís er í eigu eignarhaldsfélagsins FAD 1830 sem er skráð á lögheimili Gísla Baldurs Garðarssonar lögmanns og stjórnarformanns Olís.

Saga

Olíuverzlun Íslands var upprunalega stofnuð þann 3. október árið 1927. Stofnendur voru Héðinn Valdimarsson, Magnús Kristjánsson, Aðalsteinn Kristinsson, Hjalti Jónsson, Guðmundur Kr. Guðmundsson, Richard Torfason og Sigurður Jónsson. Héðinn Valdimarsson var forstjóri fram að dauða sínum árið 1948.

Verðsamráð

Þ ann 28. október 2004 var Olís ásamt Skeljungi hf og Orkunni dæmt til að greiða 880 milljónir í sekt vegna ólöglegs verðsamráðs en sektin var lækkuð í 560 milljónir eftir áfrýjun. Sumarið 2011 bárust fréttir af því að til greina kæmi af hálfu Landsbankans, helsta skuldadrottins Olíss, að taka fyrirtækið yfir sökum slæmrar skuldastöðu. Þá hefði Olís síðast skilað ársreikningi fyrir árið 2008.

Tilvísanir

Tengill

Tags:

Olís SagaOlís TilvísanirOlís TengillOlísFyrirtækiLandbúnaðurSjávarútvegur á Íslandi

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

ÓðinnKvennafrídagurinnVinstrihreyfingin – grænt framboðFlosi ÓlafssonListi yfir lönd og útliggjandi yfirráðasvæði eftir stærðPáskarListi yfir íslensk eiginnöfn karlmannaÖskjuhlíðarskóliNýja-SjálandStöð 2ÖræfajökullSögutímiHerðubreiðAfstæðishyggjaHarry S. TrumanC++Forsetakosningar á ÍslandiLögmál NewtonsHlaupárRjúpaKonungasögurSundlaugar og laugar á ÍslandiFreyjaSterk beygingAuður djúpúðga KetilsdóttirHermann GunnarssonMiðgarðsormurJósef Stalín1908Frjálst efniMillimetriFallorðHættir sagna2005KaupmannahöfnMannsheilinnMenntaskólinn í ReykjavíkPortúgalskur skútiSjálfbær þróunRúnirÞjóðveldiðAustur-SkaftafellssýslaKonungar í JórvíkHindúismiLindýrFinnlandLaxdæla sagaLandsbankinnSvartfuglarÍslenska kvennalandsliðið í knattspyrnuEggert ÓlafssonÁbendingarfornafnPragSeyðisfjörðurKanadaFlugstöð Leifs EiríkssonarAuschwitzSóley TómasdóttirISO 8601OttómantyrkneskaÚsbekistanLjóðstafirSikileySigga BeinteinsArabíuskaginnKópavogurJónsbókDymbilvikaLitla-HraunU2GagnagrunnurSamnafnJacques DelorsFuglSteven SeagalHjarta🡆 More