Hermann Gunnarsson: íslenskur knattspyrnumaður, sjónvarpsmaður og skemmtikraftur (1946-2013)

Hermann Gunnarsson, þekktastur sem „Hemmi Gunn“ (9.

desember 1946 – 4. júní 2013), var landsþekktur íþróttafréttamaður, skemmtikraftur, þáttastjórnandi og einn fremsti knattspyrnumaður Íslendinga á 20. öld. Hermann var án efa þekktastur fyrir skemmtiþátt sinn Á tali hjá Hemma Gunn, sem sýndur var á RÚV frá 1987 til 1995.

Hermann Gunnarsson
Hermann Gunnarsson: Ævi Hermanns, Plötur, Tilvísanir
Upplýsingar
Fullt nafn Hermann Gunnarsson
Fæðingardagur 9. desember 1946(1946-12-09)
Fæðingarstaður    Reykjavík, Ísland
Dánardagur    4. júní 2013 (66 ára)
Dánarstaður    Pattaya, Taíland
Meistaraflokksferill1
Ár Lið Leikir (mörk)


Ævi Hermanns

Hermann var einn fremsti knattspyrnumaður Íslands á sjöunda áratugnum. Hann spilaði með Val á blómaskeiði félagsins en var einnig landsliðsmaður. Hemmi þótti einnig nokkuð liðtækur í handbolta og lék nokkra landsleiki í íþróttinni. Hann átti meðal annars markametið yfir flest mörk skoruð í landsleik í mörg ár, þar til það var bætt af Gústaf Bjarnasyni í leik gegn Kína árið 1995.

Hermann stundaði nám við Verzlunarskóla Íslands. Að knattspyrnuferlinum loknum tók hann til starfa sem íþróttafréttamaður hjá Sjónvarpinu. Hann starfaði þar um árabil, þó ekki væri hann alltaf íþróttafréttamaður. Á níunda áratugnum hóf hann að stjórna sínum eigin sjónvarpsþætti hjá RÚV, Á tali hjá Hemma Gunn. Í lok mars 2005 hóf göngu sína nýr tónlistargetraunaþáttur undir stjórn Hermanns, Það var lagið, sem sýndur var á Stöð 2. Eins stjórnaði hann þættinum Í sjöunda himni á Stöð 2 veturinn 2006-'07.

Hann söng inn á hljómplötur bæði einn og með öðrum, meðal annars með Ladda. Hemmi gaf einnig sjálfur út hljómplötu, Frískur og fjörugur. Á henni er að finna lög eins og Einn dans við mig og Fallerí, fallera. Hann starfaði lengi sem fararstjóri og rak veitingastað í Tælandi. Árið 2003 starfaði hann sem kynningarstjóri Vestfirska forlagsins.

Hermann varð bráðkvaddur í Tælandi 4. júní 2013.

Plötur

  • Frískur og fjörugur (1984)
  • Hemmi Gunn og Rúnni Júll syngja fyrir börnin (1993) (Með Rúnari Júlíussyni)

Tilvísanir

Tenglar

Tags:

Hermann Gunnarsson Ævi HermannsHermann Gunnarsson PlöturHermann Gunnarsson TilvísanirHermann Gunnarsson TenglarHermann Gunnarsson194620. öld20134. júní9. desemberKnattspyrnaRÚVÁ tali hjá Hemma Gunn

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

SamskiptakenningarKjölur (fjallvegur)TorfbærÁgústa Eva ErlendsdóttirNorræn goðafræðiBikarkeppni karla í knattspyrnuTrapisaPeter MolyneuxÍslandNíðstöngLýsingarorðTékklandBaldur ÞórhallssonLeiðtogafundurinn í HöfðaKeflavíkurstöðinComcastNikósíaLaufey Lín JónsdóttirHouseElliðaeyHallgrímur Hallgrímsson (f. 1910)XboxDagur jarðarSkyrtaFiðrildiBjörgólfur Thor BjörgólfssonSnæfellsnesMislingarFranska byltinginHeiðlóaKvennafrídagurinnAtlantshafsbandalagiðBárðarbungaLýsingarhátturDýrin í HálsaskógiKjördæmi ÍslandsKennimyndReynir Örn LeóssonSnorri SturlusonAnna BretadrottningÍtalíaÍÍslenskaHáskólinn á BifröstDVNew York-borgÍrlandEyþór ArnaldsBretlandKrít (eyja)Sérsveit ríkislögreglustjóraÞjóðvegur 1BrúðkaupsafmæliInternetiðVinstrihreyfingin – grænt framboðHermann HreiðarssonTyrkjarániðVesturbakkinnListi yfir markahæstu og leikjahæstu knattspyrnumennForsetakosningar á Íslandi 1996HrafnISBNÍslendingasögurRagna RóbertsdóttirÓlafur Ragnar GrímssonKókaínLomberSkordýrSverrir Þór SverrissonB-vítamínMiðbæjarskólinnGillonVíetnamstríðiðStjórnarráð ÍslandsÞórarinn Eldjárn🡆 More