Kornhæna (fræðiheiti Coturnix coturnix) er lítill fugl af fashanaætt.
Kornhæna er ávalur fugl og brúnleitur með hvíta rönd yfir auga en karlfugl hefur einnig hvítt í höku. Vængir eru langir og kornhæna vegur frá 91–131 g og er 18.0–21.9 cm að á hæð. Kornhæna er frekar lítill og felugjarn fugl og heyrist frekar í henni en að hún sjáist. Kall karlfuglsins má helst heyra snemma morguns eða á kvöldin og stundum á nóttunni. Kornhæna er farfugl. Hún lifir á fræjum og skordýrum sem hún finnur á jörðu niðri. Kornhænur halda sig í ræktarlandi og graslendi víða um Evrópu og Asíu og verpa 6-12 eggjum í hreiður. Eggin eru 16-18 daga að klekjast út.
Kornhæna | ||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Ástand stofns | ||||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||
| ||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||
Coturnix coturnix (Linnaeus, 1758) |
Í Gamla testamentinu segir frá því að Ísraelsmenn á flótta báðu Guð um kjöt og fengu þá til sín af himnum ofan stóran flokk af kornhænum á farflugi. Kornhæna er vinsæll veiðifugl. Sagt er að enska drottningin Jane Seymour kona Henry VIII hafi þegar hún gekk með Játvarð VI fyllst óstjórnlegri löngun í kornhænur og sendimenn verið á þönum um allt ríkið til að útvega nægar birgðir af kornhænur fyrir drottninguna.
Venjuleg kornhæna er önnur tegund en hin ræktaða tegund japönsk kornhæna.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Kornhæna, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.