Herðubreið er 1686 metra hátt móbergsfjall norðan Vatnajökuls innan Vatnajökulsþjóðgarðs.
Hún er í Ódáðahrauni og er oft nefnd „Drottning íslenskra fjalla“ vegna þess hve mörgum finnst hún formfögur. Fjallið myndaðist við eldgos undir jökli. Á toppi þess eru hraunlög og hefur gosið því náð upp úr jöklinum. Slík fjöll, þ.e.a.s. móbergsfjöll með hraunlögum að ofan, kallast stapar. Herðubreið var valin þjóðarfjall Íslendinga í kosningu árið 2002.
Herðubreið | |
Herðubreið séð úr suðaustri | |
Hæð | 1.686 metrar yfir sjávarmáli |
Staðsetning | Í Ódáðahrauni, norðan Vatnajökuls |
Fjallgarður | Enginn |
Fyrst var gengið á Herðubreið með vissu árið 1908 en fram að því hafði hún verið talin ógeng. Það gerðu Sigurður Sumarliðason og þýski jarðfræðingurinn Dr. Hans Reck í ágúst það ár nánar tiltekið 13. ágúst 1908. Þann 21. apríl 2009, 101 ári seinna, fór Björn Böðvarsson vélsleðakappi úr Mývatnssveit á topp Herðubreiðar á vélknúnu ökutæki fyrstur manna, er hann náði toppnum á vélsleða sínum.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Herðubreið, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.