Hans Christian Ørsted (f.
14. ágúst 1777 — d. 5. mars 1851) var danskur eðlisfræðingur, efnafræðingur og lyfjafræðingur. Hann er einn þekktasti vísindamaður Danmerkur fyrir uppgötvun sína á rafsegulfræði.
Hann var drifkrafturinn á bakvið stofnun Danska tækniháskólans (DTU) og var fyrsti rektor hans. Í dag heitir rafmagnsverkfræðideild skólans eftir honum.
Hans Christian uppgötvaði áhrif rafmagns á segulsvið fyrir tilviljun þegar hann var að undirbúa sig fyrir fyrirlestur árið 1820. Hann tók eftir því að nál á áttavita sem hann hafði hjá sér hreyfðist þegar hann kveikti og slökkti á rafhlöðu sem hann var að vinna með.
Rannsóknir hans höfðu meðal annars mikil áhrif á franska vísindamanninn André-Marie Ampère.
Einingin fyrir styrk segulviðs í cgs-einingakerfinu er kennd við Ørsted.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Hans Christian Ørsted, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.