Hiv: Hæggeng retróveira er ræðst á ónæmiskerfi manna og veldur alnæmi

HIV (skammstöfun komin frá enska heitinu human immunodeficiency virus („ónæmisskerðingar-veira í manninum“), á íslensku stundum kölluð eyðniveira) er veira sem ræðst á ónæmiskerfi mannsins.

HIV getur smitast með blóði, sæði, leggangavökva og brjóstamjólk.

Hiv: Hæggeng retróveira er ræðst á ónæmiskerfi manna og veldur alnæmi
Mynd í gervilitum tekin með rafeindasmásjá sýnir hér HIV-veirur (í grænu) ryðja sér út úr eitilfrumu.
Hiv: Hæggeng retróveira er ræðst á ónæmiskerfi manna og veldur alnæmi
Skýringarmynd sýnir útlit HIV-veirunnar.

Veiran er af gerð víxlveira (retróveira) og af undirgerð hæggengra veira (lentivirus). Hún sýkir frumur sem gegna hlutverki í ónæmiskerfi mannsins, þá aðallega T-hjálparfrumur af undirgerð CD4+. T-hjálparfrumur eru nauðsynlegar fyrir lært ónæmi, þ.e. að líkaminn geti varist þeim sýklum sem hann hefur séð áður. Veiran drepur þessar frumur. Nokkrum árum eftir sýkingu er fjöldi CD4+ T-hjálparfrumna orðinn svo lágur að líkaminn getur ekki lengur varist nýjum sýkingum.

Einkenni eru mjög lengi að koma fram. Tæpum 2 mánuðum eftir smit fá margir höfuðverk og hita, en næstu einkenni eftir það koma ekki fram fyrr en mörgum árum síðar. Þá hefur veiran veikt ónæmiskerfið verulega og fólk fær ýmsar tækifærissýkingar. Þá kallast sjúkdómurinn alnæmi eða eyðni.

Ekki er hægt að greina sýkingu fyrr en 2 mánuðum eftir smit. Lækning við HIV er ekki til, en hægt er að halda sýkingunni algerlega í skefjum með nýjum lyfjum. Með réttri lyfjameðferð er einstaklingur ekki smitandi. Án meðferðar má reikna með að lifa í 9 til 11 ár.

Í lok árs 2016 höfðu samtals 361 greinst með HIV á Íslandi frá upphafi, 257 karlar og 104 konur. Af þeim höfðu 73 greinst með alnæmi og 39 látist af völdum HIV. Árlega greinast undir 30 einstaklingar með HIV á Íslandi.

Sambærilegar veirur finnast einnig í dýrum og eru um 4% katta heimsins sýktir af katta-eyðniveirunni.

Tenglar

  • „Er alnæmi það sama og HIV-veiran?“. Vísindavefurinn.
  • „Getur maður fengið HIV-veiruna við sjálfsfróun?“. Vísindavefurinn.
  • „Er hægt að smitast af HIV ef maður kyssir einhvern sem er smitaður?“. Vísindavefurinn.
  • „Getur HIV-veiran borist með flugum?“. Vísindavefurinn.
  • „Hversu margir eru smitaðir af HIV-veirunni í heiminum?“. Vísindavefurinn.

Tilvitnanir

Tags:

BlóðEnskaLeggöngMaðurMjólkSæðiVeiraÓnæmiskerfi

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Dísella LárusdóttirRauðisandurFreyjaFlateyriSjávarföllListi yfir risaeðlurTómas A. TómassonHeimsmetabók GuinnessOkAladdín (kvikmynd frá 1992)Hetjur Valhallar - ÞórMarokkóAdolf HitlerJakob 2. EnglandskonungurKarlakórinn HeklaSoffía JakobsdóttirFyrsti maíÁlftSvartfjallalandEldgosin við Sundhnúksgíga 2023–20242020UmmálBessastaðirListi yfir þjóðvegi á ÍslandiHelga ÞórisdóttirGamelanTjörn í SvarfaðardalTröllaskagiLánasjóður íslenskra námsmannaKristján EldjárnGuðmundar- og GeirfinnsmáliðKnattspyrnufélagið FramGoogleJökullXHTMLBjór á ÍslandiMelkorka MýrkjartansdóttirKnattspyrnufélag AkureyrarÚrvalsdeild karla í körfuknattleikLögin úr söngleiknum Deleríum BúbónisSvartahafHafnarfjörðurKúlaXXX RottweilerhundarForsíðaSkjaldarmerki ÍslandsListi yfir íslensk kvikmyndahúsMeðalhæð manna eftir löndumIndriði EinarssonJakob Frímann MagnússonYrsa SigurðardóttirOrkumálastjóriRjúpaVafrakaka26. aprílAaron MotenÍslenskaMyndlista- og handíðaskóli ÍslandsÖspJohannes VermeerEldgosaannáll ÍslandsOrkustofnunLofsöngurHrafninn flýgurKrónan (verslun)LýsingarhátturCharles de GaulleKörfuknattleikurStefán Karl StefánssonMannakornMaðurSamningurEivør PálsdóttirÓlafsvík🡆 More