Gjörhygli eða sati (sanskrít: स्मृति smṛti) er eitt af aðalhugtökunum í búddískum fræðum og er fólgið í meðvitund um eigin hugsanir, gerðir og langanir.
Þar er gengið út frá því að rétt gjörhygli sé leiðin til frelsunar frá hringrás dauða og endurfæðingar. Það er sjöunda atriðið í átta vega leiðinni svonefndu sem er andleg iðkun sadhana og er samkvæmt hefðinni talið auka innsýn og visku.
Búdda setti fram leiðbeiningar um það hvernig á að öðlast gjörhygli fyrir 2500 árum, grunn til að öðlast gjörhygli. Sé gjörhygli beitt á réttan hátt beinir hún athyglinni að því sem er að gerast í andartakinu. Með því að dvelja meira í andartakinu fara iðkendur að sjá bæði innri og ytri þætti raunveruleikans.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Gjörhygli, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.