Eskimó-Aleútísk Tungumál

Eskimó-aleútísk mál eru tungumálaætt sem töluð er af íbúum á Grænlandi, í heimskautahéruðum Kanada, Alaska og austurhluta Síberíu.

Tveir tungumálahópar tilheyra þessari málafjölskyldu, annars vegar svonefnd eskimóatungumál (sem eru kölluð inuítamál á norðurströnd Alaska, í Kanada og á Grænlandi, júpik á vesturströnd Alaska, en júit í Síberíu), og hins vegar aleútíska.

Eskimó-aleútísk tungumál
Frummál Frumeskimó-aleútíska
Frumeskimó
Undirflokkar aleútíska
inúítamál
Tungumálakóðar
ISO 639-2 esx
Eskimó-Aleútísk Tungumál
Eskimó-aleútísk mál í Norður-Ameríku

Þó aleútíska og inúítamál séu náskyld er enginn efi á að þar er um að ræða aðskilin tungumál sem þróuðust sitt í hvora áttina fyrir um 3.000 árum. Hins vegar eru tungumálafræðingar (og talendur sjálfir) ekki á einu máli um hvort tala eigi um mállýskur eða sjálfstæð mál innan inuítatungu. Þrátt fyrir að mikill munur sé á milli kjarnamálsvæða eru hvergi skörp skil milli svæða.

Ættartré

Eskimó-aleútísk mál skiptast í eftirfarandi greinar:

  • aleútíska
    • mið- og vesturmállýskur: atkan, attuan, unangan, bering (60-80 talendur)
    • austurmállýska: unalaskan, pribilof (400 talendur)
  • eskimóamál (júpik, júit, og inuít)
    • mið-alaskajúpik (10.000 talendur)
    • kyrrahafsjúpik (400 talendur)
    • júit eða síberísk júpik (Chaplinon og St. Lawrence-eyja, 1.400 talendur)
    • naukan (70 talendur í Síberíu)
    • inúítamál eða inupik (75.000 talendur)
      • inupiaq (norðurhluti Alaska, 3.500 talendur)
      • inuvialuktun eða inuktun (vesturhluti Kanada; 765 talendur)
      • inúktitút (austurhluti Kanada; ásamt inuktun og inuinnaqtun, 30.000 talendur)
      • grænlenska (Grænland, 47.000 talendur)
  • sirenik (útdautt, var áður talað í Síberíu)

Óvíst er hvernig eskimó-aleútísk mál eru skyld öðrum málaættum en þau eru a.m.k. óskyld öðrum málum frumbyggja Ameríku.

Ítarefni

Tags:

AlaskaAleútískaGrænlandInuítamálKanadaSíberíaTungumálaætt

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Björk GuðmundsdóttirEgill EðvarðssonMánuðurNúmeraplataKaupmannahöfnGylfi Þór SigurðssonLaufey Lín JónsdóttirSeljalandsfossJón Páll SigmarssonSeinni heimsstyrjöldinHnísaAlþingiskosningar 2009NeskaupstaðurForsetakosningar á ÍslandiÍslenskt mannanafnGamelanAkureyriPáll ÓskarFljótshlíðLuigi FactaGarðabærVerg landsframleiðslaKnattspyrnufélagið FramHektariLaxMassachusettsBotnssúlurKári SölmundarsonSigurboginnJóhann Berg GuðmundssonFæreyjarEnglar alheimsins (kvikmynd)KjarnafjölskyldaInnrás Rússa í Úkraínu 2022–ÝlirLánasjóður íslenskra námsmannaListi yfir íslensk kvikmyndahúsAlþingiskosningar 2016TaugakerfiðVafrakakaHeimsmetabók GuinnessSædýrasafnið í HafnarfirðiÍslenska sjónvarpsfélagiðOrkumálastjóriFimleikafélag HafnarfjarðarDavíð OddssonKristján 7.Merki ReykjavíkurborgarWayback MachineEldgosið við Fagradalsfjall 2021Íslenskar mállýskurDropastrildiNáttúrlegar tölurFullveldiÓlafsvíkKörfuknattleikurFrumtalaSmáralindEfnaformúlaHryggsúlaFáni FæreyjaÁrni BjörnssonJakobsvegurinnÞýskalandEyjafjallajökullLungnabólgaHrafninn flýgurHollandEvrópaLogi Eldon GeirssonFornafnListi yfir morð á Íslandi frá 2000🡆 More