Demantshringurinn

Demantshringurinn (enska: The Diamond Circle) er vegur sem liggur gegnum Húsavík, framhjá Ásbyrgi og Hljóðaklettum, upp að Dettifossi, að Mývatni og þaðan niður Reykjadal og Aðaldal aftur til Húsavíkur.

Til hringsins teljast þau náttúruundur sem eru staðsett við Demantshringsveginn eða í innan við 20 kílómetra akstursfjarlægð frá honum, þeirra á meðal Goðafoss, Víti og Krafla.

Demantshringurinn
Dettifoss er einn af vinsælustu áfangastöðum ferðamanna á Demantshringnum.

Náttúruperlur og áhugaverðir staðir

Demantshringurinn liggur framhjá mörgum af helstu náttúruperlum Íslands. Má það nefna Dettifoss sem er annar kraftmesti foss Evrópu (á eftir Rínarfossum) og Ásbyrgi sem lengi hefur verið vinsæll áfangastaður ferðamanna. Þá liggur vegurinn framhjá Mývatni og þeim náttúruperlum sem eru í kringum það, þar á meðal Dimmuborgum og Hverfjalli. Stutt akstursleið er af hringnum að Goðafossi sem er frægur í trúarsögu Íslands. Þá liggur vegurinn um Reykjadal og Aðaldal og framhjá Húsavíkurflugvelli. Í Aðaldal eru miklar hraunbreiður sem urðu til við eldgos í Mývatnssveit.

Saga Demantshringsins

Byrjað var að markaðssetja ferðir um Demantshringinn í kringum árið 1990 og hafa bæði innlendar og erlendar ferðaskrifstofur notað þetta hugtak í kynningum sínum. Árið 2004 var gefin út ljósmyndabókin Húsavík and the Diamond Circle með myndum af öllum helstu perlum hringsins og önnur bók um Demantshringin var gefin út af Bókaútgáfunni Hugarflugi árið 2007. Árið 2012 var stofnaðað félag áhugafólks um kynningu og uppbyggingu hringsins og nefnist það Demantshringsfélagið.

Tilvísanir

Tenglar

Tags:

Demantshringurinn Náttúruperlur og áhugaverðir staðirDemantshringurinn Saga DemantshringsinsDemantshringurinn TilvísanirDemantshringurinn TenglarDemantshringurinnAðaldalurDettifossEnskaGoðafossHljóðaklettarHúsavíkKraflaMývatnReykjadalur (Þingeyjarsýslu)VítiÁsbyrgi

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

SagnorðRómJón Kalman StefánssonBjörk GuðmundsdóttirÞorlákshöfnAlþingiskosningar 2021Seðlabanki ÍslandsBretlandSnjóflóð á ÍslandiEinar Már GuðmundssonFalklandseyjarTígrisdýrÉlisabeth Louise Vigée Le BrunStóra-LaxáÞingvellirAfstæðishyggjaJanryKínaMoldóvaLýsingarhátturJörundur hundadagakonungurAdam SmithAngelina JolieNoregurAuðunn rauðiVeldi (stærðfræði)BlóðsýkingLiðfætluættAusturríkiYAxlar-BjörnPólska karlalandsliðið í knattspyrnuTímabeltiKristján 9.MannsheilinnSnorri HelgasonKynlaus æxlunMalaríaPersónur í söguheimi Harry Potter-bókannaFirefoxListi yfir dulfrævinga á ÍslandiBorgFlokkur fólksinsJacques DelorsJón GunnarssonWilt ChamberlainJarðkötturFjallagrösÍslenska karlalandsliðið í knattspyrnuUmmálSund (landslagsþáttur)Auður djúpúðga KetilsdóttirEgill Skalla-GrímssonHöfuðborgarsvæðiðÍbúar á ÍslandiFranskur bolabíturTorfbærAlmennt brotGrikklandBragfræðiFrumbyggjar AmeríkuLissabonKristnitakan á ÍslandiTvinntölurPizzaKváradagurStöð 2MeltingarkerfiðBeaufort-kvarðinnNafnhátturBarnafossXÞorskastríðin🡆 More