Mýrasýsla Borg

Borg (oft kölluð Borg á Mýrum) er kirkjustaður rétt vestan Borgarness.

Þar er minnismerki um Egil Skallagrímsson sem bjó þar á 10. öld. Borg hefur löngum verið stórbýli og kirkja hefur verið þar frá því að kristni var lögtekin eða frá árinu 1002. Núverandi kirkja var reist árið 1880 og þykir formfögur og stílhrein bygging. Snýr kirkjan á Borg reyndar í norður-suður, sem er þvert á flestar kirkjubyggingar í íslenskum sveitum. Altaristafla kirkjunnar er eftir Íslandsvininn, listamanninn og fornleifafræðinginn W.G. Collingwood og er hún máluð eftir Íslandsferð hans árið 1897. Þá er sjálf kirkjan ekki í kirkjugarðinum, heldur koma bæjarhús á milli kirkjunnar og garðsins.

Mýrasýsla Borg
Kirkjan á Borg á Mýrum.

Sögur og sagnir

Samkvæmt Eglu var Borg landnámsjörð föður Egils, Skallagríms Kveld-Úlfssonar. Á Borg bjó síðan Egill Skalla-Grímsson og þá niðjar þeirra feðga fram eftir öldum. Á Borg hóf enn fremur búskap sinn Snorri Sturluson, sem trúlega var afkomandi Egils, og er getum að því leitt, að þar hafi hann setið við skrif Egils sögu. Í Laxdælu segir að Kjartan Ólafsson, sem var dóttursonur Egils, sé grafinn að Borg. Melkorka, ambátt Höskuldar Dala-Kollssonar var amma hans í föðurætt og Mýrkjartan, konungur Íra, var því langafi hans í föðurætt.

Heimildir

  • „Vesturland.is - Afþreying og staðir“. Sótt 15. júlí 2010.
  • Þorsteinn Jósepsson, Steindór Steindórsson og Páll Líndal (1982). Landið þitt Ísland, A-G. Örn og Örlygur.
  • Björn Hróarsson (1994). Á ferð um landið, Borgarfjörður og Mýrar. Mál og menning. ISBN 9979-3-0657-2.

Tags:

BorgarnesEgill SkallagrímssonKirkjaW.G. Collingwood

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Andri Lucas GuðjohnsenUppstigningardagurMeltingarkerfiðSöngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2023Göran KroppVerslunarmannahelginKaupmannahöfnÞýðiBesta deild karlaAuður (tónlistarmaður)DjassRistilbólgaBítlarnirb1v52Ísland79 af stöðinniBorgarfjörður eystriLeikfangasagaEigindlegar rannsóknirNýtt lífSeyðisfjörðurBessastaðirAustin (Texas)AuðkúlaForsetningarliðurEinar KárasonÁFimleikafélag HafnarfjarðarHelínÁskell LöveJapanAlbert Guðmundsson (fæddur 1997)Þórarinn EldjárnVöluspáÖrlygsstaðabardagiKleifarvatnKatrín JakobsdóttirListi yfir íslenskar hljómsveitirHeiðniBjór á ÍslandiLionel MessiÆgishjálmurElly VilhjálmsSvíakonungarEldborg (Hnappadal)Norræn goðafræðiÍsland í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðvaHlaupárSérnafnKyrrahafAri EldjárnVísir (dagblað)KíghóstiÞjóðvegur 1EkstraklasaTöluorðRætt fallÍslenska karlalandsliðið í handknattleikÁrneshreppurLýsingarorðTómaturArnar Þór JónssonHallgrímskirkja (Hvalfirði)Sálin hans Jóns míns (hljómsveit)PípuhatturForsetningGunnar Smári EgilssonBauhausSameinuðu þjóðirnarGæsalappirFlóahreppurGeir Jón ÞórissonHildur GuðnadóttirSagnorðSigríður AndersenGoogleIngólfur ArnarsonFölsk minning🡆 More