Kímblöðrumyndun er stig í fósturþroska dýrs þar sem blöðrufóstur verður til.
Blöðrufóstrið þróast síðan í kímblöðru með aðgreindum innri frumumassa sem er umlukinn næringarhýði. Blöðrufóstrið er hol kúla úr frumum sem nefnast kímfrumur. Holan nefnist kímishol og er vökvafyllt. Þegar fóstur verður til við að sáðfruma frjóvgar eggfrumu, myndast fyrst okfruma sem skiptir sér margoft og myndar frumuknippi sem nefnist hneppifóstur. Það þróast síðan yfir í blöðrufóstur þegar kímisholið myndast. Á næsta stigi fósturþroskans myndast holfóstur þar sem kímlög fóstursins myndast.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Kímblöðrumyndun, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.