Alþingiskosningar 2013

Alþingiskosningar 2013 voru haldnar 27.

apríl">27. apríl 2013. Þær voru 21. kosningarnar til Alþingis frá lýðveldisstofnun. Til viðbótar við þá fjóru flokka sem sögulega hafa myndað það sem kallað hefur verið íslenska fjórflokkakerfið, boðuðu 11 ný framboð þátttöku. Framboðin voru því 15 í allt og hafa aldrei verið fleiri í alþingiskosningum en 11 þeirra buðu fram í öllum kjördæmum.

Alþingiskosningar 2013
Ísland
← 2009
þingmenn
27. apríl 2013
þingmenn
2016
þingmenn →

63 sæti á Alþingi
32 sæti þarf fyrir meirihluta
Kjörsókn193.792 (81,4% Alþingiskosningar 20133,7%)
Flokkur Formaður % Þingsæti +/–
Sjálfstæðisflokkurinn Bjarni Benediktsson 26,7 19 +3
Framsóknarflokkurinn Sigmundur Davíð Gunnlaugsson 24,4 19 +10
Samfylkingin Árni Páll Árnason 12,9 9 -11
Vinstri græn Katrín Jakobsdóttir 10,9 7 -7
Björt framtíð Guðmundur Steingrímsson 8,2 6 +6
Píratar enginn 5,1 3 +3
Hér eru skráðir þeir flokkar sem náðu manni á þing. Heildarúrslit má sjá neðar.
Seinasta ríkisstjórn ríkisstjórn
Alþingiskosningar 2013 Annað ráðuneyti Jóhönnu Sigurðardóttur Ráðuneyti Sigmundar Davíðs GunnlaugssonarAlþingiskosningar 2013
Alþingiskosningar 2013
Kosningarnar 2013 voru þær fyrstu reglulegu eftir Bankahrunið á Íslandi haustið 2008.

Undanliðið kjörtímabil einkenndist af hörðum deilum um mörg stór mál á borð við aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu, Icesave, stjórnarskrármál og breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Í ýmsum málum var ekki samstaða innan stjórnarmeirihlutans á þingi og gengu nokkrir þingmenn úr þingflokkum stjórnarflokkanna þannig að síðustu mánuði sína í embætti var stjórnin í raun minnihlutastjórn sem naut hlutleysis óflokksbundinna þingmanna. Sú staða er óvenjuleg í íslenskum stjórnmálum en mikil hefð er fyrir sterkum meirihlutastjórnum.

Úrslit kosninganna

Flokkur Formenn Atkvæði % +/- Þingmenn +/-
Alþingiskosningar 2013  Sjálfstæðisflokkurinn Bjarni Benediktsson 50.454 26,7 +3,0 19 +3
Alþingiskosningar 2013  Framsóknarflokkurinn Sigmundur Davíð Gunnlaugsson 46.173 24,4 +9,6 19 +10
Alþingiskosningar 2013  Samfylkingin Árni Páll Árnason 24.294 12,9 -16,9 9 -11
Alþingiskosningar 2013  Vinstrihreyfingin – grænt framboð Katrín Jakobsdóttir 20.546 10,9 -10,8 7 -7
Alþingiskosningar 2013  Björt framtíð Guðmundur Steingrímsson og Heiða Kristín Helgadóttir 15.583 8,2 6 +6
Alþingiskosningar 2013  Píratar Jón Þór Ólafsson 9.647 5,1 3 +3
Alþingiskosningar 2013  Dögun Margrét Tryggvadóttir 5.855 3,1
Flokkur heimilanna Pétur Gunnlaugsson 5.707 3,0
Lýðræðisvaktin Þorvaldur Gylfason 4.658 2,5
Alþingiskosningar 2013  Hægri grænir Guðmundur Franklín Jónsson 3.262 1,7
Regnboginn Bjarni Harðarson 2.021 1,1
Landsbyggðarflokkurinn 326 0,2
Sturla Jónsson Sturla Jónsson 222 0,1
Húmanistaflokkurinn Methúsalem Þórisson 126 0,1
Alþingiskosningar 2013  Alþýðufylkingin Þorvaldur Þorvaldsson 118 0,1
Atkvæði % Þingmenn
Gild atkvæði 188.992 100 63
Auðir 4.217 2,2
Ógildir 585 0,3
Greidd atkvæði 193.792 100
Á kjörskrá og kjörsókn 237.957 81,4

Kjörnir alþingismenn 2013

Framkvæmd

Kosningarnar fóru fram 27. apríl 2013, fjórum árum og tveimur dögum eftir alþingiskosningar 2009. Frestur til þess að skila inn framboðslistum var til 12. apríl. Kosningarnar voru þær fyrstu á Íslandi þar sem fatlaðir kjósendur hafa lögbundinn rétt til þess að velja sér sjálfir aðstoðarmann til þess að aðstoða þá við kosninguna fremur en að fulltrúi kjörstjórnar geri það.

Í kosningunum 2009 var fjöldi atkvæðabærra manna á kjörskrá á bakvið hvert þingsæti ríflega tvöfalt meiri í Suðvesturkjördæmi en í Norðvesturkjördæmi en lögin um kosningar til Alþingis kveða á um munurinn megi ekki vera meiri en tvöfaldur og að færa skuli kjördæmissæti á milli kjördæma til þess að ná fram því markmiði. Samkvæmt tilkynningu landkjörstjórnar færist því eitt sæti frá norðvesturkjördæmi til suðvesturkjördæmis. Þetta er í annað skiptið sem þingsæti flyst á milli kjördæma með þessum hætti eftir að núverandi kjördæmaskipan var tekin upp en í fyrra skiptið fluttist eitt sæti á milli sömu kjördæma fyrir kosningarnar 2007. Skipting þingsæta í kosningunum 2013 var því sem hér segir:

Kjördæmi kjördæmissæti jöfnunarsæti samtals breyting
Reykjavík norður 9 2 11 Alþingiskosningar 2013 
Reykjavík suður 9 2 11 Alþingiskosningar 2013 
Suðvestur 11 2 13 Alþingiskosningar 2013  1
Norðvestur 7 1 8 Alþingiskosningar 2013  1
Norðaustur 9 1 10 Alþingiskosningar 2013 
Suður 9 1 10 Alþingiskosningar 2013 

Ákvörðun landskjörstjórnar um mörk Reykjavíkurkjördæmanna var birt 26. mars 2013 en mörkin eru óbreytt frá kosningunum 2009 og liggja eftir Hringbraut, Miklubraut og Vesturlandsvegi og í gegnum mitt Grafarholtshverfi.

Framboð

15 framboð voru í boði, þar af 11 sem bjóða fram á landsvísu. Farið er yfir mál hvers og eins framboðs hér fyrir neðan. Fyrst eru taldir í stafrófsröð þeir flokkar sem fengu kjörna fulltrúa á þing 2009. Önnur framboð fylgja í stafrófsröð þar á eftir.

Framboð á landsvísu

Björt framtíð (A)

Björt framtíð var formlega stofnuð 4. febrúar 2012 en undirbúningur hafði þá staðið um nokkurt skeið. Formenn flokksins eru Guðmundur Steingrímsson og Heiða Kristín Helgadóttir. Björt framtíð hefur mikil tengsl við Besta flokkinn í borgarstjórn Reykjavíkur og margir sem koma að starfi Bjartrar framtíðar eru einnig virkir innan Besta flokksins. Guðmundur Steingrímsson var kjörinn á þing fyrir Framsóknarflokkinn í norðvesturkjördæmi í kosningunum 2009 en sagði sig úr flokknum 23. ágúst 2011 og hefur síðan þá verið óháður þingmaður. Um leið og hann sagði sig úr flokknum boðaði Guðmundur stofnun nýs stjórnmálaafls sem ætti að höfða til frjálslynds fólks í öllum flokkum.

Ég held að ég eigi samleið með frjálslyndu fólki úr Framsóknarflokknum, Sjálfstæðisflokknum og Samfylkingunni og raunar einnig að hluta til úr Vinstri grænum.“

— Guðmundur Steingrímsson.

Róbert Marshall, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði sig úr þeim flokki 11. október 2012 og gekk til liðs við Bjarta framtíð. Flokkurinn hefur því tvo menn á þingi en sérstakur þingflokkur Bjartrar framtíðar hefur þó ekki verið stofnaður. Val á framboðslista Bjartrar framtíðar í öllum kjördæmum fór fram með uppstillingu sérstakrar sex manna nefndar en tillögur hennar voru síðar samþykktar af 40 manna stjórn flokksins.

Framsóknarflokkurinn (B)

Af sitjandi þingmönnum Framsóknarflokksins ákváðu Siv Friðleifsdóttir og Birkir Jón Jónsson að gefa ekki kost á sér áfram. Í norðausturkjördæmi, suðurkjördæmi og suðvesturkjördæmi var valið á framboðslista flokksins með tvöföldu kjördæmisþingi en í norðvesturkjördæmi og Reykjavíkurkjördæmunum var uppstilling kjörnefndar. Sérstaka athygli vakti að formaður flokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, kaus að bjóða sig fram í Norðausturkjördæmi frekar en í Reykjavík þar sem hann hafði áður verið í framboði. Höskuldur Þórhallsson var ósáttur við þessa ákvörðun formannsins en hann var í öðru sæti í norðausturkjördæmi 2009 og ætlaði sér fyrsta sætið á listanum eftir brotthvarf Birkis Jóns. Upp kom deila um það hvort að Höskuldur hafi vitað af ákvörðun Sigmundar um að sá síðarnefndi hygðist bjóða sig fram í norðausturkjördæmi þegar sá fyrrnefndi tilkynnti sjálfur um þá fyrirætlan.

Á tvöföldu kjördæmisþingi í Mývatnssveit 1. desember 2012 var Sigmundur Davíð valinn til þess að leiða listann með 63% atkvæða á móti 35% atkvæða sem féllu Höskuldi í vil. Þegar sú niðurstaða lá fyrir bauð Höskuldur sig fram í annað sæti listans og fékk stuðning 63% atkvæða í það sæti.

Flokksþing Framsóknarflokksins fór fram 8.–10. febrúar 2013. Sigmundur Davíð var þar einn í framboði til formanns og hlaut 97,6% greiddra atkvæða en Sigurður Ingi Jóhannsson bauð sig einn fram til varaformennsku og hlaut 94,7% greiddra atkvæða.

Sjálfstæðisflokkurinn (D)

Sjálfstæðisflokkurinn fékk verstu útkomu sögu sinnar í kosningunum 2009 en hefur þó verið stærsti flokkurinn í stjórnarandstöðu á kjörtímabilinu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Ólöf Nordal og Ásbjörn Óttarsson sóttust ekki eftir áframhaldandi þingsetu.

Í öllum kjördæmum nema einu var valið á framboðslista í lokuðum prófkjörum. Í norðvesturkjördæmi var kosið í fjögur efstu sæti listans á tvöföldu kjördæmisráði. Í prófkjörinu í suðvesturkjördæmi vakti athygli að Bjarni Benediktsson formaður flokksins skyldi fá tvö mótframboð í fyrsta sæti listans frá Ragnari Önundarsyni sem sóttist sérstaklega eftir 1. sæti og Vilhjálmi Bjarnasyni sem sóttist efir 1.–6. sæti listans. Bjarni vann fyrsta sætið með 56% greiddra atkvæða sem þótti slök niðurstaða fyrir sitjandi formann en forystusætið var þó aldrei í hættu þar sem önnur atkvæði dreifðust á marga frambjóðendur. Vilhjálmur Bjarnason fékk rúmlega 13% fylgi í fyrsta sætið og Ragnheiður Ríkharðsdóttir um 9% fylgi þrátt fyrir að sækjast aðeins eftir öðru sæti listans. Vilhjálmur endaði í fjórða sæti í prófkjörinu og Elín Hirst í því fimmta en þau hafa ekki áður setið á þingi.

Prófkjör flokksins í Reykjavík fór fram 24. nóvember 2012. Í framboði til fyrsta sætis listans voru Hanna Birna Kristjánsdóttir og Illugi Gunnarsson. 74% kjósenda settu Hönnu Birnu í fyrsta sætið. Sá nýliði í landsmálunum fyrir utan Hönnu Birnu sem náði lengst var Brynjar Níelsson, fyrrum formaður Lögmannafélags Íslands, sem náði fjórða sæti. Aðrir nýliðar sem náðu efstu sætum í prófkjörum eða röðun voru Valgerður Gunnarsdóttir skólameistari í öðru sæti í norðausturkjördæmi og Haraldur Benediktsson formaður Bændasamtaka Íslands í öðru sæti í norðvesturkjördæmi. Tveir sitjandi þingmenn flokksins, þeir Árni Johnsen og Tryggvi Þór Herbertsson, féllu með afgerandi hætti í prófkjörum í suður- og norðausturkjördæmum en hvorugur þeirra náði að verða á meðal sex efstu.

Staða formannsins Bjarna Benediktssonar hefur verið mikið til umræðu. Hanna Birna Kristjánsdóttir bauð sig fram gegn honum á landsfundi flokksins 2011 en Bjarni stóðst þá atlögu. Samkvæmt skoðanakönnun í febrúar 2013 töldu 82% aðspurðra að Hanna Birna yrði sterkari formaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn á móti 9% sem töldu Bjarna sterkari formannskost. Hanna Birna sóttist þó ekki eftir formannsembættinu en bauð sig fram til varaformanns á landsfundi en það embætti losnaði með brotthvarfi Ólafar Nordal. Á landsfundi var Bjarni endurkjörinn formaður með 79% atkvæða en Hanna Birna fékk 18,5% atkvæða þrátt fyrir að vera ekki í framboði til formanns. Hún var hins vegar ein í framboði í til varaformanns og hlaut 95% gildra atkvæða í það embætti.

Hægri grænir (G)

Hægri grænir eru stjórnmálaflokkur sem stofnaður var 17. júní 2010 undir formennsku Guðmundar Franklín Jónssonar. Flokkurinn telur sig til hægri í stjórnmálum og leggur m.a. áherslu á umhverfismál, skuldavanda heimila og andstöðu við Evrópusambandsaðild.

Flokkur heimilanna (I)

Halldór Gunnarsson í Holti, sem nýverið sagði sig úr Sjálfstæðisflokknum, Inga Karen Ingólfsdóttir og Vilhjálmur Bjarnason áttu frumkvæðið að stofnun flokks undir heitinu Flokkur heimilanna. 1. apríl 2013 var kynnt að átta samtök myndu standa að framboðinu og að Pétur Gunnlaugsson, lögfræðingur og útvarpsmaður myndi verða formaður þess. Flokkurinn býður fram undir listabókstafnum I en ein þeirra samtaka sem standa að flokknum, Lýðveldisflokkurinn, hafði áður fengið þeim bókstaf úthlutað.

Regnboginn (J)

Jón Bjarnason, Bjarni Harðarson, Atli Gíslason og fleiri standa að framboði Regnbogans sem lýst er sem regnhlífarsamtökum sem leggja áherslu á fullveldi og sjálfbæra þróun. Flokkurinn fékk úthlutað listabókstafnum J.

Lýðræðisvaktin (L)

Tilkynnt var um fyrirhugað framboð Lýðræðisvaktarinnar 16. febrúar 2013. Að henni stóðu meðal annars Lýður Árnason, Þorvaldur Gylfason , Pétur Gunnlaugsson og Örn Bárður Jónsson en allir sátu þeir stjórnlagaráði. Lýður starfaði áður með Dögun en sagði sig úr þeim flokki í janúar 2013 þar sem hann var ósammála áherslum þar. Pétur Gunnlaugsson sagði sig úr flokknum 25. mars vegna málefnaágreinings. Framboðið fékk listabókstafinn „L“.

Samfylkingin – jafnaðarmannaflokkur Íslands (S)

Jóhanna Sigurðardóttir settist í helgan stein að kjörtímabilinu loknu.
Árni Páll Árnason var kjörinn nýr formaður Samfylkingarinnar á landsfundi hennar.

Samfylkingin – jafnaðarmannaflokkur Íslands hefur leitt ríkisstjórn undanliðins kjörtímabils en Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og fyrrum formaður flokksins, sóttist ekki eftir endurkjöri. Hún hættir því á þingi eftir 35 ára samfellda setu þar. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir sem hefur verið forseti Alþingis lengst af kjörtímabilsins mun einnig hætta.

Í öllum kjördæmum var notast við lokað prófkjör („flokksval“) við val á framboðslista. Sérstök athygli beindist að prófkjöri flokksins í suðvesturkjördæmi þar sem Árni Páll Árnason – sem þá hafði gefið það út að hann sæktist eftir formannsembætti í Samfylkingunni – var í framboði til sætis og atti þar kappi við Katrínu Júlíusdóttur sem einnig var talin líkleg til þess að stefna á formannsframboð. Prófkjörið fór fram 9. – 10. nóvember og Árni Páll sigraði með 1041 atkvæði í fyrsta sætið en Katrín hlaut 910 atkvæði í fyrsta sætið. Nýjir frambjóðendur sem ekki hafa áður setið á þingi en náðu ofarlega á lista í prófkjörum Samfylkingarinnar eru til dæmis Björk Vilhelmsdóttir borgarfulltrúi í þriðja sæti í Reykjavík suður, Erna Indriðadóttir upplýsingafulltrúi Alcoa í öðru sæti í norðausturkjördæmi. Af sitjandi þingmönnum hafnaði Sigmundur Ernir Rúnarsson í 4. sæti í norðausturkjördæmi og á litla möguleika á að komast á þing nema fylgi Samfylkingarinnar verði mun meira en skoðanakannanir gefa til kynna.

Landsfundur Samfylkingarinnar fór fram 1. – 3. febrúar 2013. Jóhanna Sigurðardóttir og Dagur B. Eggertsson létu þá af embættum sínum sem formaður og varaformaður flokksins. Árni Páll Árnason og Guðbjartur Hannesson voru í framboði til formanns en kosning til þess embættis fór fram rafrænt og var opin öllum skráðum meðlimum flokksins. 5.621 greiddu atkvæði og sigraði Árni Páll með 62,2% greiddra atkvæða. Í framboði til varaformanns voru Katrín Júlíusdóttir og Oddný G. Harðardóttir og náði Katrín kjöri með atkvæðum 308 landsfundarfulltrúa á móti 214 atkvæðum Oddnýjar.

Dögun (T)

Dögun eru stjórnmálasamtök sem urðu til úr Borgarahreyfingunni með aðkomu Hreyfingarinnar, Frjálslynda flokksins og nokkurra einstaklinga sem sátu í stjórnlagaráði. Framboðið hefur fengið úthlutað listabókstafnum T. Sérstök 13 manna nefnd mun stilla upp framboðslistum í öllum kjördæmum. Þór Saari er oddviti nefndarinnar en Guðjón Arnar Kristjánsson varamaður hans. Meðal þeirra sem eru tengdir framboðinu eru Andrea J. Ólafsdóttir, Gísli Tryggvason og Margrét Tryggvadóttir.

Vinstrihreyfingin – grænt framboð (V)

Steingrímur J. Sigfússon sóttist ekki eftir endurkjöri sem formaður. Sú ákvörðun var tengd við slakt gengi VG í skoðanakönnunum.
Katrín Jakobsdóttir var kjörin sem nýr formaður VG án mótframboðs og hlaut 98% stuðning í embættið.

Vinstrihreyfingin - grænt framboð býður fram til Alþingis í fimmta skiptið en nú í fyrsta skiptið eftir að hafa setið heilt kjörtímabil í ríkisstjórn. Hreyfingin fékk 14 menn kjörna í kosningunum 2009 en fjórir þingmenn, þau Atli Gíslason, Ásmundur Einar Daðason, Jón Bjarnason og Lilja Mósesdóttir, sögðu skilið við þingflokkinn á tímabilinu á meðan einn, Þráinn Bertelsson, gekk til liðs við hreyfinguna. Þar að auki lét Guðfríður Lilja Grétarsdóttir af þingmennsku um áramót 2012 og 2013. Af þingmönnum hreyfingarinnar í lok tímabils sækjast Þráinn Bertelsson og Þuríður Backman ekki eftir áframhaldandi setu á þingi.

Í fimm kjördæmum var valið á framboðslista með prófkjörum (forvali) en í suðurkjördæmi var stillt upp á framboðslista. Í prófkjöri í suðvesturkjördæmi buðu Ögmundur Jónasson og Ólafur Þór Gunnarsson sig fram í fyrsta sætið. Ögmundur sigraði með 53% atkvæða í fyrsta sætið en Ólafur lenti í öðru sæti. Vegna kynjareglu var Ólafur færður niður í þriðja sætið en Rósa Björk Brynjólfsdóttir var í öðru sæti. Björn Valur Gíslason flutti sig um kjördæmi og bauð sig fram í Reykjavík frekar en norðausturkjördæmi en var ekki á meðal efstu manna í prófkjörinu þar. Lilja Rafney Magnúsdóttir varð í fyrsta sæti í prófkjörinu í norðvesturkjördæmi og Steingrímur J. Sigfússon í norðausturkjördæmi. Í suðurkjördæmi var Arndís Soffía Sigurðardóttir valin í efsta sæti listans af uppstillingarnefnd.

16. febrúar 2013 tilkynnti Steingrímur J. Sigfússon formaður hreyfingarinnar að hann myndi hætta sem formaður á landsfundi VG sem fram fer 22.-24. febrúar. Steingrímur hefur verið formaður hreyfingarinnar frá stofnun hans 1999. Daginn eftir tilkynnti Katrín Jakobsdóttir, varaformaður um framboð sitt til formanns. Katrín var ein í framboði til formanns og hlaut stuðning 98% greiddra atkvæða. Björn Valur Gíslason sigraði í kosningu til varaformanns með ríflega 50% atkvæða gegn tveimur mótframbjóðendum.

Píratar (Þ)

Píratar á Íslandi stofnuðu stjórnmálaflokk að fyrirmynd erlendra pírataflokka 24. nóvember 2012. Birgitta Jónsdóttir fyrrum þingmaður Hreyfingarinnar kom að stofnuninni og bauð sig fram til setu á framboðslista Pírata. Stefnumál flokksins eru mótuð á sérstökum umræðu- og kosningavef flokksins og þar sem jafnframt var valið á framboðslista hans. Flokkurinn fékk úthlutað listabókstafnum Þ.

Framboð í færri kjördæmum

Húmanistaflokkurinn (H)

Húmanistaflokkurinn var stofnaður árið 1984 og hefur í þrígang boðið fram til Alþingis, síðast 1999. Hann stefnir á framboð í öllum kjördæmum og hefur fengið úthlutað listabókstafnum „H“.

Sturla Jónsson (K)

Sturla Jónsson vörubílsstjóri er með framboð í eigin nafni en framboðið hét áður Framfaraflokkurinn. Framboðið hefur fengið úthlutað listabókstafnum K. Það býður einungis fram í Reykjavíkurkjördæmi suður.

Landsbyggðarflokkurinn (M)

Stofnfundur sérstaks landsbyggðarflokks fer fram 23. febrúar 2013 en undirbúningshópur hafði þá verið starfandi undir stjórn Magnúsar Hávarðssonar á Ísafirði. Aðstandendur flokksins telja hallað á landsbyggðina í ýmsum málaflokkum og að stefna annarra flokka mótist um of af tenglsum þeirra við höfuðborgarsvæðið. Flokkurinn stefndi að framboði í landsbyggðarkjördæmunum þremur en skilaði aðeins framboðslista í norðvesturkjördæmi.

Alþýðufylkingin (R)

Alþýðufylkingin var stofnuð 13. janúar 2013 en framhaldsstofnfundur átti sér stað 16. febrúar. Flokkurinn er róttækur vinstri flokkur sem ætlar sér að vera „baráttutæki íslenskrar alþýðu til að bæta hag sinn með því að heimta sitt úr höndum auðstéttarinnar.“ Formaður flokksins er Þorvaldur Þorvaldsson og varaformaður er Vésteinn Valgarðsson. Alþýðufylkingin hefur listabókstafinn R og bauð fram í Reykjavíkurkjördæmunum tveim.

Framboð sem eru óvirk eða hafa hætt við framboð

Hér að neðan eru listuð þau framboð sem voru til umræðu í aðdraganda kosninga en buðu ekki fram.

Samstaða (C)

Stjórnmálaflokkurinn Samstaða varð til í febrúar 2012 og var í upphafi undir forystu Lilju Mósesdóttur auk Sigurðar Þ. Ragnarssonar. Flokkurinn fékk úthlutað listabókstafnum „C“ og boðaði framboð í öllum kjördæmum. Lilja hafði verið kjörin á þing 2009 fyrir vinstri græn en sagði sig úr þeim flokki 21. mars 2011 vegna ágreinings við forystu flokksins um samstarf við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, vegna Icesave-málsins og skuldavanda heimila.

Flokkurinn fór mjög kröftuglega af stað og mældist í einni skoðanakönnun í febrúar 2012 með næst mest fylgi allra framboða eða 21,3%. Fylgi flokksins átti þó aldrei eftir að mælast svo hátt aftur og dalaði hratt á næstu vikum og mánuðum auk þess sem áberandi samstarfserfiðleikar voru til staðar sem urðu til þess að Sigurður Þ. Ragnarsson yfirgaf flokkinn fljótlega eftir stofnun hans. 23. ágúst 2012 tilkynnti Lilja um það að hún myndi ekki sækjast eftir því að gegna áfram formannsembætti í Samstöðu á landsfundi flokksins sem yrði haldinn 6. október sama ár og þannig axla ábyrgð á fylgistapinu. Lilja tilkynnti svo 22. desember 2012 að hún ætlaði sér ekki að sækjast eftir endurkjöri á þing og yrði því ekki í framboði fyrir Samstöðu. Á landsfundi Samstöðu 9. febrúar 2013 var samþykkt að flokkurinn myndi ekki bjóða fram í kosningunum en starfa áfram og reyna að hafa áhrif á stjónmálaumræðuna. Lilja Mósesdóttir var jafnframt kjörin formaður flokksins á nýjan leik.

Bjartsýnisflokkurinn (E)

Bjartsýnisflokkurinn kennir sig við „hófsama þjóðernishyggju“ og boðaði mögulegt framboð með fréttatilkynningu til fjölmiðla í júní 2012. Einar Gunnar Birgisson var þá formaður flokksins og forsvarsmaður hans. Framboðið fékk úthlutað listabókstafnum „E“ en 300 meðmælendur þarf til þess að framboð fái úthlutað staf. Málefni innflytjenda og hælisleitenda eru flokkinum mjög hugleikin en öll stefnumál hans samkvæmt fréttatilkynningu snúast um þann málaflokk og fela í sér „eins stranga innflytjendalöggjöf og við komust upp“ og að mun strangari hömlur verði settar við veitingu pólitísks hælis. Í janúar 2013 virtist áform flokksins um framboð vera í uppnámi. Einar Gunnar hefur sagt sig frá flokksstarfinu og aðrir ekki boðið sig fram til þess að leiða framboðið. Listabókstafur flokksins var afskráður 26. mars 2013 eftir að hann tilkynnti innanríkisráðuneytinu um að hætt hafi verið við framboðið.

Lýðfrelsisflokkurinn

Lýðfrelsisflokkurinn (sem áður var kallaður Norræni íhaldsflokkurinn) boðaði framboð snemma árs 2012 og kvaðst sækja fyrirmyndir til borgaralegra flokka á Norðurlöndunum og Þýskalandi. Engar fréttir hafa borist eftir það um að framboð sé í undirbúningi.

Kristin stjórnmálasamtök

Kristin stjórnmálasamtök boðuðu framboð í janúar 2013 um leið og Snorri Óskarsson, oft kenndur við söfnuðinn Betel, gekk til liðs við samtökin. Frekari fréttir hafa ekki borist af framboðsáformum samtakanna.

Kannanir

Alþingiskosningar 2013 
Línurit yfir niðurstöður kannana frá ársbyrjun 2012 til og með 4. apr 2013. Stjörnur standa fyrir niðurstöður í einstökum könnunum en þegar margar kannanir falla á sama daginn eða innan fjögurra daga tímabils þá er tekið meðaltal af þeim niðurstöðum og línurnar fylgja þeim meðaltölum. Kannanir sem standa yfir löng tímabil eru dagsettar á miðju tímabilsins.

     Framsóknarflokkurinn      Sjálfstæðisflokkurinn      Samfylkingin – Jafnaðarmannaflokkur Íslands      Björt framtíð      Vinstrihreyfingin – grænt framboð      Píratar      Hægri grænir      Lýðræðisvaktin      Dögun      Samstaða      aðrir

Að neðan er yfirlit yfir birtar skoðanakannanir frá ársbyrjun 2012. Skyggðar tölur í hverri röð merkja stærstu framboðin sem samanlagt hafa yfir helming fylgis í þeirri könnun.

Framkvæmd Aðili Úrtak Nefna flokk Framsóknarfl. Sjálfstæðisfl. Samfylkingin Vinstri græn Björt framtíð DögunD Hægri grænir Lýðræðisvaktin Píratar Samstaða Aðrir
11.4 – 14.4 MMR 930M 81,9% 32,7% 22,9% 10,4% 6,7% 9,5% 3,6% 1,0% 3,0% 9,0% 1.4%
5.4 – 8.4 MMR 906M ? 30,2% 21,2% 12,7% 8,1% 9,2% 1,9% 2,2% 3,6% 7,8% 3,0%
2.4 – 8.4 Félagsvísindastofnun HÍ 3700 (61%) 30,9% 18,9% 12,6% 8,8% 10,9% 3,0% 5,6% 9,3%
3.4 – 4.4 Fréttablaðið / Stöð 2 1231 (800)F 64,1% 40,0% 17,8% 9,5% 5,6% 8,3% 0,6% 3,5% 2,8% 5,6% 5,0%
14.3 – 1.4 Þjóðarpúls Gallup 7290 (60,2%) G 80,1% 28,3% 22,4% 15,0% 8,5% 12,7% 1,5% 2,1% 3,1% 4,4% 2%
22.3 – 25.3 MMR 893M ? 29,5% 24,4% 12,5% 8,7% 12,0% 1,7% 2,5% 1,7% 3,9% 3,2%
18.3 – 26.3 Félagsvísindastofnun HÍ 3400 (60%) 1284 28,5% 26,1% 12,8% 8,0% 11,4% 1,4% 2,1% 2,6% 3,3% 3,0%
13.3 – 14.3 Fréttablaðið / Stöð 2 Geymt 13 apríl 2013 í Archive.today 1295 (801)F 59,9% 31,9% 27,6% 13,8% 7,1% 9,1% 1,6% 2,4% 1,4% 1,8% 2,0%
7.3 – 12.3 MMR 875M 79,9% 25,9% 27,2% 12,4% 9,6% 15,2% 1,9% 2,1% 3,6% 2,0%
28.2 – 14.3 Þjóðarpúls Gallup 4243 (60,1%) G 80,6% 25,5% 26,8% 14,0% 8,9% 13,2% 0,7% 2,8% 3,3% 3,8% 1,0%
27.2 – 28.2 Fréttablaðið / Stöð 2 1382 (800)F 57,8% 26,1% 29,0% 12,8% 11,8% 8,7% 2,0% 2,6% 2,6% 1,6% 2,3%
19.2 – 4.3 Félagsvísindastofnun HÍ 2400 (55%) 22,4% 29,4% 16,1% 9,9% 12,0% 0,9% 2,3% 3,7% 1,8% 1,4%
19.2 – 21.2 MMR 814M ? 23,8% 28,5% 12,8% 9,5% 15,3% 2,2% 2,5% 2,4% 3,0%
31.1 - 28.2 Þjóðarpúls Gallup 7273 (61,1%) G 79,4% 22,1% 29,7% 15,4% 7,4% 16,2% 1,3% 3,2% 2,3% 2,4%
31.1 – 6.2 MMR 874M 76,8% 19,5% 33,0% 16,2% 8,6% 17,8% 0,9% 1,8% 0,6% 0,7% 0,8%
Birt 3.2 Plúsinn ~800 svörP 100,0%P1 18,4% 32,7% 14,4% 5,7% 14,0% 2,0% 6,0% 2,0% 3,0% 1,0%
30.1 – 31.1 Fréttablaðið / Stöð 2[óvirkur tengill] 1382 (800)F 54,6% 20,8% 32,0% 11,9% 11,4% 16,4% 1,5% 4,3% 0,9% 0,2%
3.1 – 31.1 Þjóðarpúls Gallup[óvirkur tengill] 9798 (60,1%)G 77,7% 14,2% 35,5% 15,6% 7,9% 18,6% 2,1% 2,5% 2,1% 1,0% 0,4%
Birt 20.1 MMR -M1 - 14,8% 34,5% 17,3% 8,6% 17,6% 2,2% 2,0% 1,4% 1,5%
Birt 20.1 Plúsinn ~1800 ~1400 12,5% 40,6% 19,9% 5,0% 14,1% 2,0% 3,0% 1,0% 1,0% 0,1%
16.1 – 17.1 Fréttablaðið / Stöð 2 Geymt 13 apríl 2013 í Archive.today 1342 (800) 59,8% 11,9% 40,7% 19,2% 7,3% 14,4% 1,9% 1,9% 0,6% 0,6% 1,0%
28.11 – 28.12 Þjóðarpúls Gallup 6860 (6%) 76,9% 13,1% 36,3% 19,1% 9,1% 12,3% 3,0% 2,6% 2,5% 1,3% 0,4%
Birt 11.12 MMR -M1 - 13,6% 37,4% 17,4% 11,2% 11,5% 3,1% 2,0% 1,9% 2,0%
1.11 – 29.11 Þjóðarpúls Gallup 5759(6%) 73,1% 12,7% 35,9% 22,5% 10,6% 8,1% 3,8% 3,3% 1,9% 1,7%
Birt 13.11 MMR -M1 - 12,0% 37,7% 18,6% 11,3% 10,8% 2,4% 3,1% 2,3% 1,8%
27. 9 – 31.10 Þjóðarpúls Gallup 9150 (60,1%) 70,9% 12,1% 36,2% 22,1% 11,7% 6,9% 3,8% 3,8% 1,9% 1,7%
Birt 12.10 MMR -M1 - 11,2% 35,3% 21,2% 13,9% 8,8% 2,1% 2,1% 3,1% 1,9%
Birt 20.9 MMR -M1 - 17,0% 34,9% 17,7% 15,8% 6,8% 2,6% 1,0% 4,1%
30.8 – 27.9 Þjóðarpúls Gallup 5591 (60,2%) 71,6% 14,2% 37,1% 19,4% 12,4% 4,9% 3,6% 4,4% 2,4% 1,7%
Birt 6.9 MMR -M1 - 13,3% 40,6% 19,3% 12,9% 5,9% 1,4% 1,7% 4,8%
1.8 – 31.8 Þjóðarpúls Gallup Geymt 21 maí 2013 í Wayback Machine 5550 (60,6%) 72,7% 13,8% 36,0% 20,7% 13,3% 4,5% 3,7% 3,0% 3,0% 2,0%
Birt 16.7 MMR -M1 - 17,0% 38,5% 16,9% 11,4% 4,1% 3,9% 2,5% 5,7%
26.6 – 29.7 Þjóðarpúls Gallup Geymt 22 maí 2013 í Wayback Machine 6022 (60,3%) 72,2% 12,4% 36,9% 21,0% 12,2% 5,2% 4,1% 3,1% 2,7% 2,5%
Birt 19.6 MMR -M1 - 17,5% 36,4% 16,4% 13,3% 4,6% 3,1% 4,4% 4,3%
31.5 – 28.6 Þjóðarpúls Gallup Geymt 22 maí 2013 í Wayback Machine 5400 (60,2%) 72,2% 12,7% 38,2% 18,8% 11,9% 4,3% 4,3% 3,6% 4,7% 1,6%
23.5 – 24.5 Fréttablaðið / Stöð 2[óvirkur tengill] 1326 (800) 60,8% 15,8% 43,7% 13,6% 9,2% 5,3% 2,7% 3,9% 5,1%
Birt 15.5 MMR -M1 - 12,8% 38,5% 17,7% 14,1% 7,6% 2,6% 3,1% 3,6%
26.4 – 31.5 Þjóðarpúls Gallup Geymt 22 maí 2013 í Wayback Machine 6624 (60,9%) 73,0% 12,9% 39,3% 17,7% 10,4% 4,0% 5,4% 5,6% 4,6%
Birt 17.4 MMR -M1 - 14,5% 39,0% 14,6% 13,2% 8,1% 2,1% 4,5% 3,9%
29.3 – 26.4 Þjóðarpúls Gallup Geymt 23 maí 2013 í Wayback Machine 5400 (61,7%) 71,6% 12,5% 37,0% 18,7% 11,5% 5,6% 5,4% 6,9% 2,4%
11.4 – 12.4 Fréttablaðið / Stöð 2[óvirkur tengill] 800 svör 54,0% 14,6% 42,6% 14,8% 8,6% 7,2% 2,1% 2,3% 6,0% 0,9%
Birt 18.3 MMR -M1 - 13,2% 37,3% 18,3% 11,3% 4,3% 2,6% 9,1% 3,9%
1.3 – 29.3 Þjóðarpúls Gallup 6635 (60,3%) 68,1% 13,0% 38,2% 17,5% 11,2% 4,7% 1,9% 8,9% 4,6%
2.2 – 29.2 Þjóðarpúls Gallup Geymt 8 mars 2013 í Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni 5378 (61,7%) 72,9% 13,0% 33,3% 18,7% 12,0% 4,3% 2,7% 11,3% 4,7%
8.2 – 9.2 Fréttablaðið / Stöð 2[óvirkur tengill] 800 svör 52,9% 12,5% 35,0% 12,3% 8,0% 6,1% 1,7% 0,9% 21,3% 1,2%
5.1 – 31.1 Þjóðarpúls Gallup Geymt 8 mars 2013 í Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni 6271 (65,5%) 69,5% 15,4% 36,1% 21,8% 13,7% 3,4% 9,5%
25.4.2009 Alþingiskosningar 2009 14,8% 23,7% 29,8% 21,7% 10,0%
    ^D  Niðurstöður Dögunar, Hreyfingarinnar og Borgarahreyfingarinnar eru birtar hér í einum dálki en misjafnt er á milli könnunaraðila hvernig niðurstöður þessara framboða eru birtar.
    ^F  Kannanir Fréttablaðsins eru símakannanir. Hringt er í handahófsúrtak úr þjóðskrá þangað til næst í 800 manns.
    ^G  Þjóðarpúls Gallup byggir á netkönnun sem lögð er fyrir úrtak úr viðhorfahópi Capacent. Talan hér er heildarfjöldi þeirra sem boðið er að taka þátt í könnuninni en hlutfallstala í sviga stendur fyrir hlutfall þeirra sem svöruðu könnuninni.
    ^M  Kannanir MMR eru netkannanir sem lagðar eru fyrir slembiúrtak einstaklinga á aldrinum 18-67 ára úr hópi „álitsgjafa MMR“.
    ^M1  Niðurstöður þessara kannana eru fengnar af yfirlitssíðu MMR þar sem ekki koma fram upplýsingar um úrtak, svarhlutfall eða dagsetningu framkvæmdar. Fyrstu könnunum ársins 2012 frá MMR er hér sleppt vegna ófullnægjandi sundurliðunar á niðurstöðum.
    ^P  Kannanir Plússins eru netkannanir sem gerðar hafa verið fyrir útvarpsþáttinn Sprengisand á Bylgjunni. Ekki hafa verið birtar nákvæmar tölur um fjölda þátttakenda eða svarenda.
    ^P1  Í þessari könnun voru ekki í boði möguleikar um að skila auðu eða velja engann flokk.

Tilvísanir

Stjórnmálaframboð


Fyrir:
Alþingiskosningar 2009
Alþingiskosningar Eftir:
Alþingiskosningar 2016

Tags:

Alþingiskosningar 2013 Úrslit kosningannaAlþingiskosningar 2013 FramkvæmdAlþingiskosningar 2013 FramboðAlþingiskosningar 2013 KannanirAlþingiskosningar 2013 TilvísanirAlþingiskosningar 2013 TenglarAlþingiskosningar 2013201327. aprílAlþingiAlþingiskosningarFjórflokkakerfið

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

EinokunarversluninSamfylkinginHrafna-Flóki VilgerðarsonVeik beygingFyrsti maíForsetakosningar á Íslandi 2012ForsíðaSumardagurinn fyrstiHelsinkiKváradagurTinKúrlandÞorskastríðinTékklandDemókrataflokkurinnVerðbréfÁstandiðVeröld Andrésar andarHljómskálagarðurinnJóhann Berg GuðmundssonEinar BenediktssonFelix BergssonStúdentsprófForsetakosningar á Íslandi 2016ÍslamJúlíus CaesarGrænlandElbaTrúarbrögðSvartfuglarBreiðholtHnúfubakurMývatnHafnarfjörðurNafliFyrsti vetrardagurSvartidauðiBretlandMinniMaríutásaBreska samveldiðSveinn BjörnssonHættir sagna í íslenskuGerður KristnýMynsturAlþingiskosningar 2021AlfreðIvar Lo-JohanssonLitla-HraunHámenningNafnhátturGulrófaHowlandeyjaAlþýðuflokkurinnBreytaVík í MýrdalKatrín JakobsdóttirHollenskaÍslendingabókUngmennafélagið FjölnirPatricia HearstUrriðiFlórídaKortisólInnrás Rússa í Úkraínu 2022–Rómversk-kaþólska kirkjanKelly ClarksonGrétar Rafn SteinssonKornRíkharður DaðasonLoftbelgurEyjafjörðurIngibjörg Sólrún GísladóttirStjórnarráð ÍslandsÁbrystirKynfruma🡆 More