Þjóðsaga er stutt saga sem hefur gengið í munnmælum frá manni til manns um nokkurt skeið; stundum öldum saman og stundum í nokkur ár eða áratugi.
Þjóðsögur eru oft litaðar af aldarfari, þrám og ótta almennings og bera oftar en ekki keim af búháttum og málfari þess tíma og stundum einnig málsniði þeirra sem segja þær. Þeim er stundum skipt í eftirfarandi grunnflokka (upphaflega frá Grimmsbræðrum):
Tegundir þjóðsagna eru þó mun fleiri og oft erfitt að fella þær undir þessa þrjá flokka. Dæmi um munnmælasögur eru til dæmis hlutar dýrlingasagna, dæmisögur, brandarar, draugasögur, upprunasagnir og sköpunarsagnir, ýkjusögur og flökkusögur.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Þjóðsaga, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.