Ólympusfjall eða Ólympsfjall (latína: Olympus Mons) er 24 km há dyngja á Mars, staðsett á Þarsis-svæðinu.
Það er hæsta fjall reikistjörnunnar og jafnframt hæsta fjall sólkerfisins og þar með hæsta fjall sem vitað er um. Fjallið er um 540 km í þvermál og er því stærra að flatarmáli en Ísland. Í toppi þess er sigdæld, sem er um 85 km löng og 60 km breið. Hún er nálægt 3 km á dýpt og í henni eru gígar eldfjallsins, 6 að tölu.
Ólympusfjall nær þó aðeins 25 km yfir meðalhæð yfirborðs Mars, þar sem það stendur í 2 km djúpri dæld, það er afmarkað af virkisbrekku sem er allt að 6 km há, en hún á sér enga líka meðal dyngja Mars.
Árið 2004 tók Mars Express geimfarið myndir af hrauni á fjallinu sem var aðeins 2 milljóna ára gamalt, sem gefur til kynna að eldfjallið gæti enn verið virkt.
Hawaiieyjar eru dæmi um dyngjur af svipaðri stærðargráðu, en stærð Ólympusfjalls orsakast líklega af því að á Mars eru ekki jarðflekar, og jarðskorpan var þar með föst á ákveðnum stað yfir heitum reit og hið mikla hraun sem kom upp dreifðist ekki yfir stærra svæði.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Ólympsfjall (Mars), which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.