Óendurnýjanlegar Auðlindir

Óendurnýjanlegar auðlindir (e.

Non-renewable resources) eru stofnar eða birgðir af náttúruauðlindum sem eru varðveitanlegar, en óendurnýjanlegar. Auðlindir geta orðið óendurnýjanlegar ef gengið er um of á stofn eða birgðir þeirra, það er að auðlindin hefur ekki undan að endurnýjast í samanburði við notkun og neyslu mannfólksins. Dæmi um slíkar auðlindir eru olía og kol. Á móti, sem dæmi um endurnýjanlegar auðlindir, eru vind- og sólarorka og er það vegna þess að endurnýjanleiki þeirra getur átt sér stað í takt við notkun og neyslu.

Nýting og sjálfbærni

Öll jarðefni eru óendurnýjanleg, heildarmagn þeirra er gefið og það verða ekki til auknar birgðir af þeim. Jarðefni skiptast í jarðefnaeldsneyti og önnur jarðefni. Jarðefnaeldsneyti eins og kol og olía eru bæði óendurnýjanleg og óendurvinnanleg. Það kostar að nýta auðlindina og breyta henni í hrávöru sem seld er á markaði. Munurinn sem skapast þar á milli kallast renta. Til að ná fram sjálfbærni við óendurnýjanlegar auðlindir þarf að nota rentuna til þess að fjárfesta í nýjum auðlindum.

Auðlindir sem búið er að nýta verða ekki nýttar aftur en það er hægt að ná fram sjálbærni með eftirfarandi leiðum:

•Með því að hugsa notkunina á tiltekinni auðlind eins og umskiptaferli, þar sem auðlindinni verður að lokum skipt út fyrir staðgönguvöru eða aðra auðlind sem meira er til af.

•Með því að nota rentuna sem skapast við nýtingu auðlindarinnar til þess að fjárfesta í öðrum tegundum auðlinda og þannig viðhalda heildarframleiðni hagkerfisins þrátt fyrir að fyrri auðlindin skerðist

Dæmi um óendurnýjanlegar auðlindir

Jarðefnaeldsneyti

Jarðefnaeldsneyti eru unnin úr lífrænum efnum sem hafa myndast og verið föst á milli setlaga jarðarinnar í milljónir ára.

Hrá- og jarðolía- Er óendurnýjanleg auðlind sem hefur byggst upp í fljótandi formi í millilögum jarðskorpunnar. Sótt með því að bora ofan í jörðina og henni pumpað upp úr. Vökvinn er svo hreinsaður og nýttur í mismunandi vörur, t.d. plast, gervibragðefni, bensín, dísel og própan.

Gastegundir- Safnast saman undir jarðskorpunni og þarf einnig að bora eftir þeim. Algengustu gastengundirnar sem nýttar eru á þennan hátt eru metan og etan.

Kol- Myndað úr samþjöppuðu lífrænu efni og er sótt með námuvinnslu. Kol eru helst nýtt við kyndun húsa og í virkjunum.

Kjarnorkueldsneyti

Kjarnorkueldsneyti er önnur af tveimur gerðum óendurnýjanlegra auðlinda sem nýttar eru til orku. Það er sótt með námuvinnslu og hreinsun á úrani. Kjarnorkueldnseyti er mjög mikilvægt til þess að viðhalda umhverfi Jarðarinnar þar sem það er það hreinasta af öllum óendurnýjanlegu auðlindunum.

Heimildir

Tags:

Óendurnýjanlegar Auðlindir Nýting og sjálfbærniÓendurnýjanlegar Auðlindir Dæmi um óendurnýjanlegar auðlindirÓendurnýjanlegar Auðlindir HeimildirÓendurnýjanlegar AuðlindirKolOlíaSólarorkaVindorkaen:Non-renewable resource

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

ZSkapabarmarVesturfararHarry PotterSikileyIcelandairIndóevrópsk tungumálFinnland í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðvaKólumbíaÍsraelISO 8601Páll ÓskarSeinni heimsstyrjöldinBesta deild karlaSprengjuhöllinKoltvísýringurIðnbyltinginÍslendingasögurMatarsódiListi yfir íslensk skáld og rithöfundaBjörk GuðmundsdóttirSpjaldtölvaLettlandGrikklandRómverskir tölustafirStykkishólmurÁratugurSiglufjörðurFyrsta málfræðiritgerðin24. marsSundlaugar og laugar á ÍslandiRúnirGuðnýTónstigiKobe BryantVistarbandiðHegningarhúsiðGuðmundur Franklín JónssonSameinuðu þjóðirnarÁstandiðEilífðarhyggjaTígrisdýrAfturbeygt fornafnFrançois WalthéryYorkMalaríaAuschwitzDyrfjöllÓlafur Grímur BjörnssonSukarnoKalda stríðiðUtahQuarashiHjörleifur HróðmarssonElon MuskHellissandurBeaufort-kvarðinnFuglGuðlaugur Þór ÞórðarsonNoregurSameinuðu arabísku furstadæminHallgrímskirkjaVestur-SkaftafellssýslaArabíuskaginnJapanElly VilhjálmsNafnhátturÍslamOfviðriðSýslur ÍslandsHarry S. TrumanEignarfornafnMengunDanmörkKváradagur27. mars🡆 More