Óskarsverðlaunin: Bandarísk kvikmyndaverðlaun

Óskarsverðlaunin (enska: Academy Awards eða óformlega the Oscars) eru bandarísk kvikmyndaverðlaun veitt kvikmyndagerðarmönnum og öðrum sem starfa við kvikmyndir.

Verðlaunahátíðin er yfirleitt sú best kynnta og mest áberandi á Vesturlöndum, og verðlaunin af flestum talin þau eftirsóknarverðustu. Óskarsverðlaunin eru veitt af Bandarísku kvikmyndaakademíunni (Academy of Motion Picture Arts and Sciences), samtökum fólks sem starfar við kvikmyndagerð í Bandaríkjunum, og er aðild að þeim einungis veitt í heiðursskyni.

Óskarsverðlaunin
Óskarsverðlaunin: Verðlaunaflokkar, Íslenskar tilnefningar til Óskarsverðlauna, Íslenskir Óskarsverðlaunahafar
Veitt fyrirFramúrskarandi árangur í kvikmyndagerð
LandBandaríkin
UmsjónBandaríska kvikmyndaakademían
Fyrst veitt16. maí 1929
Vefsíðaoscars.org/oscars
Óskarsverðlaunin: Verðlaunaflokkar, Íslenskar tilnefningar til Óskarsverðlauna, Íslenskir Óskarsverðlaunahafar
Verðlaunahátíðin 2008

Árið 2003 voru 5.816 meðlimir í akademíunni með kosningarétt við val á Óskarsverðlaunahöfum. Óskarsverðlaunin hafa verið veitt árlega frá 1929.

Fyrsta framlag Íslands til tilnefningar á Óskarsverðlaunahátið var myndin Land og synir eftir Ágúst Guðmundsson frá árinu 1980 en það var í 53. sinn sem hátíðin var haldin.

Verðlaunaflokkar

Núverandi flokkar

Upphafsár Verðlaunaflokkur
1927/28 Besta kvikmynd
1927/28 Besti leikstjóri
1927/28 Besti leikari í aðalhlutverki
1927/28 Besta leikkona í aðalhlutverki
1927/28 Besta kvikmyndataka
1927/28 Besta heildarútlit/listræn stjórnun
1927/28 Besta handrit byggt á öðru verki
1929/30 Besta hljóð
1930 Besta stutta teiknimyndin
1931/32 Besta leikna stuttmyndin
1934 Besta klipping
1934 Besta frumsamda kvikmyndatónlistin
1934 Besta frumsamda lag
1936 Besti leikari í aukahlutverki
1936 Besta leikkona í aukahlutverki
1939 Bestu tæknibrellur
1940 Besta frumsamda handritið
1941 Besta stutta heimildarmyndin
1943 Besta heimildarmynd
1947 Besta alþjóðlega kvikmyndin
1948 Besta búningahönnun
1981 Besta förðun og hárgreiðsla
2001 Besta teiknimynd

Íslenskar tilnefningar til Óskarsverðlauna

Eftirtaldir íslenskir aðilar eða myndir hafa fengið tilnefningu Bandarísku kvikmyndaakademíunnar til Óskarsverðlauna.

Íslenskir Óskarsverðlaunahafar

  • Árið 2020 vann Hildur Guðnadóttir Óskar fyrir bestu frumsömdu tónlistina fyrir myndina Joker og varð fyrst Íslendinga til að vinna slík verðlaun.

Tilvísanir

Tengill

Tags:

Óskarsverðlaunin VerðlaunaflokkarÓskarsverðlaunin Íslenskar tilnefningar til ÓskarsverðlaunaÓskarsverðlaunin Íslenskir ÓskarsverðlaunahafarÓskarsverðlaunin TilvísanirÓskarsverðlaunin TengillÓskarsverðlauninEnskaKvikmyndVesturlönd

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Andri Snær MagnasonElliðavatnParísarsamkomulagiðListi yfir íslenska sjónvarpsþættiKrónan (verslun)SúrefniSteinþór Hróar SteinþórssonSnæfellsjökullSnorri SturlusonEggert ÓlafssonÆðarfuglAlþingiskosningarÍsraelJárnMS (sjúkdómur)Stórar tölurStjórnarráð ÍslandsÁsynjurSelfossSjómílaXHTMLJoe BidenÓðinnDrakúlaÓbeygjanlegt orðSteypireyðurMenntaskólinn í ReykjavíkSigrún EldjárnWho Let the Dogs OutKatrín OddsdóttirHeiðarbyggðinÍslensk sveitarfélög eftir mannfjöldaHallgrímskirkjaUngmennafélagið StjarnanRauðsokkahreyfinginKnattspyrnufélagið VíkingurKnattspyrnufélagið ValurVistkerfiAdolf HitlerEndurnýjanleg orkaXXX RottweilerhundarTúrbanliljaHeiðar GuðjónssonBesti flokkurinnPáskarSjálfstæðisflokkurinnJarðskjálftar á ÍslandiÁramótStari (fugl)Vísindaleg flokkunHöfrungarÚrvalsdeild karla í handknattleikSeljalandsfossSterk beygingTjörneslöginEvraLandráðHvalfjarðargöngHámenningBoðorðin tíuSjávarföllSigurður Ingi JóhannssonAuður djúpúðga KetilsdóttirHöskuldur ÞráinssonFinnlandDjúpalónssandurSkarphéðinn NjálssonJurtÁbendingarfornafnÆvintýri TinnaGuðrún BjörnsdóttirÓákveðið fornafnMannsheilinnSkjaldarmerki ÍslandsListi yfir íslenskar stafsetningar- og málfræðivillurRíkisútvarpið🡆 More