Þeseifur (forngríska Θησεύς) var goðsagnakenndur konungur Aþenu, sonur Æþru og Egeifs eða Póseidons, sem Æþra sængaði hjá einu sinni.
Þeseifur var stofnhetja, líkt og Perseifur, Kadmos og Herakles, sem börðust allir við og sigruðu andstæðinga sem tengdust á einhvern hátt fornri trú og samfélagsgerð.
Herakles var dóríska hetjan, en Þeseifur jóníska stofnhetjan, sem Aþeningar álitu landsföður. Nafn hans er rótskylt orðinu θεσμός (þesmos), gríska orðinu fyrir stofnun. Þeseifur bar ábyrgð á synoikismos („sambúðinni“) — stjórnmálalegri sameiningu Attíkuskagans. Þeseifur, fyrsti konungur sameinaðs Attíkuskaga samkvæmt hefðinni, byggði sér höll á Akrópólishæð.
Landfræðingurinn Pásanías segir að eftir sameininguna hafi Þeseifur stofnað helgidóm Afródítu Pandemos („Afródítu alls fólksins“) og Peiþó á suðurhlíð Akrópólishæðar. Ef til vill er frægasta sagan af Þeseifi í nútímanum sú sem segir frá því hvernig honum tókst að drepa Mínótárosinn á Krít.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Þeseifur, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.