Laugardalshöll

Laugardalshöll er um 6.500 m² íþrótta-, tónleika-, sýningar- og ráðstefnuhöll í Laugardalnum í Reykjavík.

Laugardalshöll var lengi vel stærsta íþrótta- og tónleikahús landsins og hefur í gegnum tíðina hýst ýmsa stórviðburði eins og tónleika Led Zeppelin 1970, skákeinvígi Fischers og Spasskíjs 1972 og Heimsmeistaramótið í handbolta 1995. Í Laugardalshöll hafa auk þess oft verið haldnar stórar vörusýningar, svo sem heimilissýningarnar og atvinnuvegasýningar af ýmsu tagi.

Laugardalshöll
Ísland - Frakkland Laugardalshöll, apríl 2010

Saga

Laugardalshöllin var hönnuð af Gísla Halldórssyni og Skarphéðni Jóhannssyni 1959 og byggð af Reykjavík og Íþróttabandalagi Reykjavíkur. Framkvæmdir hófust 29. ágúst 1959, en var stoppuð tvisvar, fyrst vegna fjárskorts og svo vegna verkfalls. Þakið var steypt á þremur dögum í september 1963 og verkinu lauk 1965. Fyrsti leikurinn var 4. desember 1965 á milli HCB Karviná og Fram.

Fyrsta viðbyggingin var byggð austan megin við bygginguna til að auka fjölda áhorfenda fyrir heimsmeistaramótið í handbolta 1995. Eftir mótið var stækkuninni breytt í líkamsræmtaraðstöðu fyrir hafnabolta en hýsir núna ráðstefnur og geymslurými.

Í september 2004 var tilkynnt að 9.500 metra viðbygging yrði byggð við höllina fyrir frjálsar íþróttir sem einnig gæti hýst aðra viðburði. Viðbyggingin er með 200 metra hlaupabraut og framkvæmdum lauk 2005.

2017 ákvað ÍBR að gera fýsileikakönnun á byggingu nýs fjölnota íþróttaleikvangi en honum var hafnað vegna kostnaðar. Höllin mætir ekki alþjóðareglum handboltans og körfuboltans en spilað er í henni á undanþágu. Í janúar 2020 var ákveðið að mynda starfshóp til að koma með tillögur. Í maí samþykktu borgin og ríkið að búa til leikvang fyrir landsliðin sem yrði deilt með Þrótti og Ármanni.

Í Janúar 2023 var kostnaðurinn áætlaður 14,2 milljarðar króna fyrir 8.600 manna höll. Höllin er áætluð að vera sunnan við núverandi Laugardalshallar byggingar með tengibyggingu. Í maí setti Reykjavík upp deiluskipulag fyrir nýja leikvanginn. Í september 2023 tilkynnti formaður undirbúningsnefndar nýju hallarinnar að verklok verði 2026 eða 2027.

Viðburðir

Eflaust er stærsti viðburðurinn heimsmeistaramótið í skák 1972 þegar Bobby Fischer sigraði þáverandi meistara Boris Spasskí. Kvikmyndin Bobby Fisher Against the World (2011) inniheldur atriði úr höllinni.

Leikvangurinn hýsti heimsmeistaramótið 1995. 2009 hýsti höllin þjóðfundinn 2009 og frá 2007 til 2011 hýsti höllin samkomu EVE Online. Síðan 2016 hefur höllin hýst Söngvakeppnina. 2021 hýsti höllin tölvuleikjamótin League of Legends Mid-Season Invational, Valorant Masters og heimsmeistaramót League of Legends.

Tónleikar erlendra listamanna

Heimildir

Tengill

64°08′25″N 21°52′41″V / 64.140305°N 21.877985°V / 64.140305; -21.877985

Tags:

Laugardalshöll SagaLaugardalshöll ViðburðirLaugardalshöll HeimildirLaugardalshöll TengillLaugardalshöll19701972Bobby FischerBoris SpasskíjFermetriLaugardalurLed ZeppelinReykjavíkSkák

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Íbúar á ÍslandiÍranDaði Freyr PéturssonEldgígurHáskólinn í ReykjavíkEintalaAusturríkiAlþingiskosningar 2021VersalasamningurinnKaupmannahöfnFreyjaHjaltlandseyjar1995SameindTýrAnthony C. GraylingSnyrtivörurAriana GrandeGuðrún BjarnadóttirLoðnaGísli Örn GarðarssonSigmundur Davíð GunnlaugssonEndurnýjanleg orkaRómaveldiHöggmyndalistJökulgarðurGrænlandOrkaFallbeygingEldgosaannáll ÍslandsFuglMarseilleSiðaskiptinEnglar alheimsinsLína langsokkurLotukerfiðStefán MániMaó ZedongVaduzSnjóflóðið í SúðavíkÍslensk mannanöfn eftir notkunVotheysveikiGuðmundar- og GeirfinnsmáliðJesúsVVopnafjörðurP1986EldgosÚtgarðurSvarfaðardalurBalfour-yfirlýsingin1989Agnes MagnúsdóttirPaul Rusesabagina28. marsStjórnmálMilljarðurÍslandsbankiMohammed Saeed al-SahafRúmmálÁlFjarðabyggðBorgRagnar JónassonÞingkosningar í Bretlandi 2010HrafnÍslenskur fjárhundurSeyðisfjörðurKirkjubæjarklausturTónlistarmaðurSjónvarpið🡆 More