Blur er hljómsveit frá Englandi.
Hún var stofnuð í London árið 1988 og er talin hluti af bretapoppi. Um miðbik tíunda áratugarins varð hljómsveitin vinsæl þegar platan Parklife kom út og rígur milli hennar og hljómsveitarinnar Oasis var áberandi. Blur tók upp plötuna Blur á Íslandi og Damon Albarn, söngvari sveitarinnar, umgekkst meðal annars hljómsveitina Botnleðju. Árið 2001 hætti Graham Coxon gítarleikari í sveitinni vegna innri deilna og einbeitti sér að sólóferli. Blur tók sér hlé frá árinu 2003 en kom svo aftur saman árið 2008. Coxon sneri aftur og fyrsta breiðskífa Blur í 13 ár leit dagsins ljós; Magic Whip, árið 2015.
Blur | |
---|---|
Upplýsingar | |
Uppruni | London |
Ár | 1988-2003, 2009-2015, 2023- |
Stefnur | britpop, indie-rokk |
Meðlimir | Damon Albarn, Graham Coxon, Alex James, Dave Rowntree |
Vefsíða | http://www.blur.co.uk |
Damon Albarn: Söngur, hljómborð, gítar og kassagítar
Graham Coxon: Gítar, bakraddir, saxófón
Alex James: bassi
Dave Rowntree: Trommur, bakraddir
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Blur, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.