Áramótaskaup 2021 er áramótaskaup sem var sýnt á RÚV þann 31.
desember">31. desember 2021. Helsta viðfangsefni skaupsins var Covid-19 og sóttvarnareglur því tengdu, eldgosið við Fagradalsfjall, sjónvarpsþátturinn Katla og Alþingiskosningarnar.
Áramótaskaupið 2021 | |
---|---|
Tegund | Grín |
Handrit | Bergur Ebbi Gagga Jónsdóttir Hugleikur Dagsson Katla Margrét Þorgeirsdóttir Lóa Hjálmtýsdóttir Vilhelm Þór Neto |
Leikstjóri | Reynir Lyngdal |
Lokastef | Ef þú hugsar eins og ég |
Upprunaland | Ísland |
Frummál | Íslenska |
Útsending | |
Upprunaleg sjónvarpsstöð | RÚV |
Tímatal | |
Undanfari | Áramótaskaup 2020 |
Framhald | Áramótaskaup 2022 |
Tenglar | |
IMDb tengill |
Höfundar skaupsins voru Vilhelm Neto, Bergur Ebbi, Hugleikur Dagsson, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Gagga Jónsdóttir og Lóa Hjálmtýsdóttir. Leikstjóri var Reynir Lyngdal en þetta var fjórða skaupið sem hann leikstýrði. Tökur hófust í nóvember 2021 og enduðu 8. desember sama ára. Republik sá um framleiðsluna. Framleiðendur skaupsins voru Ada Benjamínsdóttir, Hannes Friðbjarnarson og Lárus Jónsson.
45% landsmanna sögðust vera ánægt með skaupið.
Meðal þess sem gert var grín að var:
Annað sem gert var grín að var grímuskylda, sóttkví, Víðir Reynisson, Sigríður Hagalín Björnsdóttir, áhrifavaldar, kvíðni, kulnun, pappírsrör, Útlendingastofnun, mygla í grunnskólum, þáttaröðin Katla, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Framsóknarflokkurinn, Bjarni Benediktsson, Gunnar Smári Egilsson, Katrín Jakobsdóttir, Inga Sæland, Ingólfur Þórarinsson, Birgir Þórarinsson, Jakob Frímann Magnússon, Tómas A. Tómasson, Me too-hreyfingin, Klaustursmálið og heimasíðan OnlyFans.
Kannanir sýndu að aðeins 45% þjóðarinnar þótti Skaupið gott, það var töluvert slakara en undanfarin ár, en árið áður höfðu 84% sagt að þeim findist Skaupið gott. Á Twitter voru skiptar skoðanir, sumir sögðu að það hafi verið geggjað aðrir lýstu því sem „forgettable“.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Áramótaskaup 2021, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.