Trommusett er safn slagverkshljóðfæra sem raðað er upp á þægilegan hátt þannig að einn hljóðfæraleikari geti leikið á þau öll samtímis.
Grunntrommusett sem notuð eru í dægurtónlist samanstendur af eftirfarandi einingum:
Bassatromma, tromma sem látin er liggja á gólfi, oftast milli 40 og 60 cm að þvermáli. Slegin með fótstigli, oftast með hægri fæti.
Sneriltromma (eða snerill), oftast nær mest notaða tromman í trommusetti. Hún er yfirleitt með gormum neðan á sem látnir eru liggja upp við neðri skinnið til að fá "krispí" hljóm.
Hi-hat, tvö málmgjöll sem liggja hvort á móti öðru og hægt er að opna þau og loka með fótstigli sem oftast er stjórnað með vinstri fæti.
Oftast er þó fleiri slagverkseiningum bætt við sem eru:
Málmgjöll einnig kölluð symbalar, eru einskonar diskar gerðir úr málmi. Mis mörgum málmgjöllum er komið fyrir á statífum í kringum trommusettið, algengt er að þau séu á bilinu 0 til 8 stykki en allur gangur er á því. Algengustu málmgjöllin nefnast crash og ride, en einnig má nefna splash og kínasymbala.
Pákur (e. toms) eru sívalar trommur sem raðað er við hliðina á eða í kringum snerilinn. Oftast eru notaðar á bilinu 0 til 5 pákur en algengast er að þær séu 2 eða 3.
Ekki er óalgengt að fleiri slagverkshljóðfærum sé bætt við trommusett.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Trommusett, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses. ®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.