Thích Quảng Đức (1897 – 11.
júní">11. júní 1963 í Saigon í Víetnam) (quốc ngữ: Thích Quảng Đức; Chữ Nôm: 釋廣德) var búddamunkur frá Huế í Víetnam sem framdi sjálfsmorð með sjálfsíkveikju á miðdegi 11. júní 1963 á fjölförnum gatnamótum í Saigon í Víetnam til að mótmæla kúguninni sem búddistar þurftu að þola undir stjórn forsætisráðherra landsins, Ngô Đình Diệm, sem var kaþólskrar trúar. Forsetafrú hans, Ngô Đình Nhu, hafði það að segja um atburðinn að hún myndi klappa sæji hún aðra „munkagrillsýningu“, þessi ummæli urðu til þess að hún fékk viðurnefnið „drekakonan“.
Thích Quảng Đức hafði undirbúið sig fyrir sjálfsíkveikjuna með hugleiðslu um nokkurra vikna skeið og útskýrt ástæðurnar fyrir henni í bréfum til búddistasamfélagsins og ríkisstjórnar Suður-Víetnam. Í þessum bréfum útskýrði hann löngun sína til að vekja athygli á kúgun búddasamfélagsins af hálfu ríkisstjórnar Ngô Đình Diệm. Í bréfi til ríkisstjórnarinnar hafði hann beðið hana að:
Ríkisstjórnin varð ekki við þessum beiðnum, sem varð til þess að Thích Quảng Đức framdi sjálfsíkveikju sína. Eftir dauða hans var hann endur-brenndur og sagt er að hjarta hans hafi ekki viljað brenna, fyrir vikið er það talið heilagt.
Árið 1992 notaði rokkhljómsveitin Rage Against The Machine myndina á umslagi samnefndri frumraunar þeirra.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Thích Quảng Đức, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.