Teiknimyndasögur eru listform sem felst í því að listamaðurinn segir sögu í myndum sem raðað er upp í ákveðna röð.
Sögurnar geta verið annað hvort með texta eða án en algengast er að einhver texti fylgi. Algengt er að stuttar teiknimyndasögur (1-5 rammar) birtist í dagblöðum en lengri teiknimyndasögur eru gjarnan gefnar út í blöðum og jafnvel í stærri brotum sem er þá kallað „graphic novels“ á ensku. Teiknimyndasögur eru kallaðar comics á ensku, manga á japönsku og bande dessinée eða B.D. á frönsku. Í Bretlandi er gjarnan talað um comics sem innlendar teiknimyndasögur en comic books sem teiknimyndasögur frá Bandaríkjunum.
Í Evrópu er Svisslendingurinn Rodolphe Töpffer þekktur fyrir teiknimyndaraðir sínar frá upp úr 1830 en í Bandaríkjunum er guli krakkinn sem teiknaður var af Richard F. Outcault í dagblað í kringum 1890. Í Japan er löng hefð fyrir stjórnmálaskopmyndum en hinar japönsku manga urðu fyrst vinsælar með list listamannsins Hokasai seinna á 20. öld. Fyrirrennarar nútíma teiknimyndasagna eru hellamyndir í Frakklandi sem margar hverjar eru í tímaröð, egypskar híeróglýfur, Colonna Traiana í Róm, Bayeux-refillinn, mynd Michelangelo af síðustu kvöldmáltíðinni í Sixtínsku kapellunni og tímamyndir William Hogarth.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Teiknimyndasaga, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.