Svíþjóðardemókratar eru sænskur stjórnmálaflokkur sem byggir á þjóðernishyggju og félagslegri íhaldssemi.
Svíþjóðardemókratar Sverigedemokraterna | |
---|---|
Formaður | Jimmie Åkesson |
Stofnár | 6. febrúar 1988 |
Höfuðstöðvar | Stokkhólmi, Svíþjóð |
Stjórnmálaleg hugmyndafræði | Íhaldsstefna, þjóðernishyggja, hægri-lýðhyggja |
Einkennislitur | Gulur |
Sæti á ríkisþinginu | |
Sæti á Evrópuþinginu | |
Vefsíða | sd.se |
Flokkurinn var stofnaður árið 1988 upp úr eldri flokkum sem nátengdir voru sænskum nýnasistahreyfingum. Fyrsti leiðtogi flokksins, Anders Klarström, hafði áður verið meðlimur í Norræna ríkisflokknum, flokki sænskra nasista sem dáðust að Hitler. Annar af stofnendum flokksins, Leif Zeilon, hafði einnig verið virkur í nasistahreyfingum og hafði áður verið leiðtogi sænska Lýðræðisbandalagsins.
Í kringum og eftir aldamótin fór flokkurinn að fjarlægjast nýnasískan uppruna sinn og milda stefnu sína í ýmsum málum, sér í lagi eftir að Jimmie Åkesson varð leiðtogi flokksins árið 2005. Meðal annars féll flokkurinn frá gömlum kröfum um að öllum innflytjendum sem hefðu komið til Svíþjóðar utan Evrópu eftir 1970 skyldi vísað úr landi og um að dauðarefsing skyldi tekin upp á ný.
Árið 2011 lýsti Åkesson því yfir að kynþáttahyggja yrði framvegis ekki liðin innan flokksins. Í kjölfarið var mörgum meðlimum vísað úr Svíþjóðardemókrötum. Deilur um meinta kynþáttahyggju innan flokksins leiddu árið 2018 til þess að nokkrir róttækari þingmenn hans klufu sig úr Svíþjóðardemókrötum árið 2018 og mynduðu nýjan flokk, Valkost fyrir Svíþjóð.
Flokkurinn hlaut í fyrsta sinn kosningu til sænska þingsins árið 2010 og hlaut 5,7 prósent atkvæða. Í Evrópuþingskosningunum 2014 fékk flokkurinn 9,7% fylgi og tvo Evrópuþingmenn. Í sænsku þingkosningunum 2014 hlaut flokkurinn 12,9 af hundraði atkvæða og, vegna fárra afgangsatkvæða, 14 % þingsæta. Í kosningum árið 2018 juku Svíþjóðardemókratar enn við sig og urðu annar stærsti flokkurinn á sænska þinginu á eftir Jafnaðarmannaflokknum, með um 19,2 % greiddra atkvæða. Þar sem bæði hægri- og vinstriblokkirnar á sænska þinginu neituðu að vinna með Svíþjóðardemókrötum ríkti stjórnarkreppa í heila fjóra mánuði eftir kosningarnar.
Í kosningunum 2022 urðu Svíþjóðardemókratar aftur næststærsti flokkurinn á þingi á eftir Jafnaðarmönnum með 20,6% atkvæða. Í þetta sinn höfðu aðrir hægriflokkar opnað á möguleikann á samstarfi við Svíþjóðardemókrata. Eftir kosningarnar mynduðu hinir hægriflokkarnir minnihlutastjórn undir forsæti Ulfs Kristersson sem Svíþjóðardemókratar verja vantrausti.
Svíþjóðardemókrötunum hefur verið lýst sem þjóðernissinnuðum íhaldsflokk sem er andvígur Evrópusambandinu. Dæmi sem má nefna af stefnuskrá flokksins eru:
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Svíþjóðardemókratar, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.