Salman bin Abdulaziz Al Sád (سلمان بن عبد العزیز آل سعود á arabísku letri) (f.
31. desember 1935) er konungur Sádi-Arabíu, forsætisráðherra Sádi-Arabíu og verndari hinna tveggja heilögu moska frá byrjun ársins 2015.
| ||||
Salman bin Abdul Aziz al-Sád سلمان بن عبد العزیز آل سعود | ||||
Ríkisár | 23. janúar 2015– | |||
Skírnarnafn | Salman bin Abdulaziz bin Abdul Rahman bin Faisal bin Turki bin Abdúlla bin Múhameð bin Sád | |||
Fæddur | 31. desember 1935 | |||
Ríad, Sádí-Arabíu | ||||
Konungsfjölskyldan | ||||
Faðir | Ibn Sád | |||
Móðir | Hassa bint Ahmad Al Sudairi | |||
Börn | Fahd, Sultan, Ahmed, Abdulaziz, Faisal, Múhameð, Sád, Turki, Khalid |
Salman var aðstoðarríkisstjóri og síðar ríkisstjóri Ríad-fylkis í 48 ár, frá 1963 til 2011. Hann var þá útnefndur varnarmálaráðherra ríkisins. Árið 2012 var hann útnefndur ríkisarfi að krúnu Sádi-Arabíu eftir dauða bróður síns, Nayef bin Abdulaziz. Salman var krýndur konungur Sádi-Arabíu þann 23. janúar árið 2015 eftir að hálfbróðir hans, Abdúlla konungur, lést.
Meðal þess sem Sádar hafa gert á konungstíð Salmans er hernaðarinngrip í borgastyrjöldina í Jemen. Sádar hafa einnig kynnt áætlun (Saudi Vision 2030) um að draga úr mikilvægi olíuframleiðslu í sádi-arabíska efnahagnum. Árið 2018 gaf Salman einnig út konunglega tilskipum sem gáfu konum í Sádi-Arabíu ökuréttindi. Sonur Salmans, krónprinsinn Múhameð bin Salman, stóð að baki margra þessara ákvarðana og er af mörgum talinn hinn eiginlegi valdsmaður á bak við krúnuna.
Fyrirrennari: Abdúlla bin Abdul Aziz al-Sád |
| Eftirmaður: Enn í embætti |
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Salman bin Abdul Aziz al-Sád, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.