Richard Thaler

Richard H.

Thaler (fæddur 12. september 1945) er bandarískur hagfræðingur og prófessor í atferlisvísindum og hagfræði við Booth School of Business í Chicago. Árið 2015 var Thaler forseti American Economic Association. Thaler hlaut Nóbelsverðlaunin í hagfræði árið 2017 fyrir framlög sín til atferlishagfræði. Árið 2018 var hann kjörinn meðlimur bandarísku Vísindaakademíunnar, The National Academy of Sciences.

Ævi

Thaler fæddist í East Orange, New Jersey í gyðingafjölskyldu. Móðir hans, Roslyn var kennari og síðar fasteignasali á meðan faðir hans, Alan Maurice Thaler var tryggingafræðingur hjá Prudential Financial í Newark, New Jersey. Hann á þrjú börn frá sínu fyrsta hjónabandi og er nú giftur France Leclerc, fyrrum prófessor í markaðsfræði við háskólann í Chicago.

Thaler útskrifaðist frá Newark Academy, áður en hann lauk B.A. gráðu árið 1967 frá Case Western Reserve University. Hann lauk hlaut doktorsgráðu árið 1974 frá háskólanum í Rochester. Ritgerð hans "The Value of Saving A Life: A Market Estimate" var skrifuð undir handleiðslu Sherwin Rosen.

Thaler stofnaði ásamt fleirum eignastýringafyrirtækið Fuller & Thaler Asset Management árið 1993.

Framlög til hagfræðinnar

Thaler hefur starfað með hagfræðingum á borð við Daniel Kahneman, Amos Tversky að rannsóknum á raunverulegri efnahagslegri hegðun, bæði meðal neytenda og fjárfesta. Rannsóknir hans brúa hagfræði og sálfræði til að skilja hvað gerist þegar slakað er á klassískum forsendum hagfræðinnar um að einstaklingar séu full-upplýstir, skynsamir, og eigingjarnir. Í reynd hegði fólk sér ekki í samræmi við hinn skynsama og rökvísa homo-economicus.

Thaler er meðhöfundur ásamt Cass R. Sunstein að metsölubókinni Nudge (2008) þar sem hugtök atferlishagfræði eru notuð til að takast á við mörg af helstu vandamálum samfélagsins. Árið 2015 gaf hann út Misbehaving: The Making of Behavioral Economics. Hann hefur einnig skrifað eða ritstýrt fjórum öðrum bókum: Quasi-Rational Economics, The Winner's Curse: Paradoxes and Anomalies of Economic Life, og Advances in Behavioral Finance bindi I og II.

Richard H. Thaler fékk Nóbelsverðlaunin í hagfræði árið 2017 fyrir framlag sitt til atferlishagfræði.

Tilvísanir

Tags:

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

2003Alþjóðasamtök kommúnista23. marsVarúðarreglanAusturríkiKeníaAfríkaWright-bræðurJoðNorðfjarðargöngListi yfir þjóðvegi á ÍslandiRegla PýþagórasarSúnníSuður-AfríkaLundiÍsraelMeðaltal1996MollEnska1954BrúneiHryggsúlaUAmerískur fótboltiKjarnorkuslysið í TsjernobylHöfuðborgarsvæðiðDanmörkBragfræðiSumardagurinn fyrstiUpplýsinginRíkisstjórn ÍslandsSkyrbjúgurEvraLandsbankinnSovétríkinTvisturPablo EscobarFormSúðavíkurhreppurSpurnarfornafnEldstöðEggert ÓlafssonJósef StalínHellissandurÞórsmörkGuðrún Bjarnadóttir11. marsXXX RottweilerhundarStýrivextirHans JónatanVolaða landListi yfir afskriftir fyrirtækja í kjölfar efnahagshrunsins 2008LénsskipulagStreptókokkarLögaðiliGjaldeyrirLýðræðiSkuldabréfÁlftAndorraApabólufaraldurinn 2022–2023Barbra StreisandListi yfir morð á Íslandi frá 2000AlsírRagnar loðbrókFerðaþjónustaHjartaKirkjubæjarklausturGuðni Th. JóhannessonNorður-AmeríkaSýrlenska borgarastyrjöldinArsenEgill Skalla-GrímssonAtviksorð🡆 More