Patrice Lumumba: Kongóskur stjórnmálamaður, fyrrverandi forsætisráðherra Lýðveldisins Kongó

Patrice Émery Lumumba (2.

júlí 1925 – 17. janúar 1961) var kongóskur sjálfstæðisleiðtogi og fyrsti lýðræðislega kjörni forsætisráðherra Lýðveldisins Kongó (nú Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó). Lumumba var lykilmaður í að semja um sjálfstæði Kongó frá Belgíu og var stofnandi og leiðtogi Kongósku þjóðernishreyfingarinnar (fr. Mouvement national congolais; MNC).

Patrice Lumumba
Patrice Lumumba: Kongóskur stjórnmálamaður, fyrrverandi forsætisráðherra Lýðveldisins Kongó
Patrice Lumumba í Brussel árið 1960.
Forsætisráðherra Lýðveldisins Kongó
Í embætti
24. júní 1960 – 5. september 1960
ForsetiJoseph Kasa-Vubu
ForveriFyrstur í embætti
EftirmaðurJoseph Iléo
Persónulegar upplýsingar
Fæddur2. júlí 1925
Katakokombe, belgíska Kongó (nú Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó)
Látinn17. janúar 1961 (35 ára) Élisabethville (nú Lubumbashi), Katanga
DánarorsökMyrtur
StjórnmálaflokkurKongóska þjóðernishreyfingin (Mouvement national congolais)
MakiPauline Opanga Lumumba
TrúarbrögðKaþólskur
BörnMichel, François, Guy Patrice, Juliane, Patrice, Roland
StarfStjórnmálamaður

Stuttu eftir að Kongó hlaut sjálfstæði árið 1960 gerði herinn uppreisn sem markaði upphaf Kongódeilunnar. Lumumba biðlaði til Bandaríkjanna og Sameinuðu þjóðanna um hjálp við að kveða niður aðskilnaðarsinnana í Katanga en hafði ekki erindi sem erfiði. Því leitaði hann þess í stað til Sovétríkjanna. Þetta leiddi til ágreinings Lumumba við Joseph Kasa-Vubu forseta og starfsmannastjórann Joseph-Desiré Mobutu auk þess sem ákvörðunin styggði mjög Bandaríkin og Belgíu. Í kjölfarið var Lumumba handtekinn af ráðamönnum undir stjórn Mobutu, framseldur aðskilnaðarsinnunum í Katanga og tekinn af lífi. Lík hans var síðan bútað í sundur og líkamshlutarnir leystir up í sýru. Eftir dauða hans fóru sjálfstæðissinnar í Afríku að líta á Lumumba sem píslarvott sem hefði látið lífið í viðleitni til að endurheimta sjálfstæði nýlendanna.

Bæði belgísk og bandarísk stjórnvöld liggja undir grun sem þátttakendur í samsærinu sem leiddi til dauða Lumumba. Viðhorf þeirra til Lumumba litaðist af kalda stríðinu og voru þau tortryggin í hans garð þar sem hann þótti hallur undir Sovétríkin. Lumumba sagðist þó ekki vera kommúnisti, heldur hafi hann neyðst til að leita á náðir Sovétríkjanna þar sem enginn annar vildi hjálpa honum að leysa Kongó úr viðjum nýlenduyfirráða. Belgískir liðsforingjar fóru fyrir aftökusveitinni sem batt enda á líf Lumumba. Bandaríska leyniþjónustan hafði auk þess lagt drög að áætlunum til að koma Lumumba fyrir kattarnef og Dwight D. Eisenhower Bandaríkjaforseti hafði sjálfur viljað hann feigan.

Það eina sem varðveittist af jarðneskum leifum Lumumba var ein gulltönn sem belgískur lögreglumaður reif úr líkinu og fór með til Belgíu. Tönnin varðveittist í fórum fjölskyldu hans fram til ársins 2020, en þá úrskurðaði belgískur dómstóll að tönninni skyldi skilað til Kongó.

Tilvísanir

Tags:

BelgíaKongóLýðstjórnarlýðveldið Kongó

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

EintalaMilljarðurGyðingdómurÍslendingasögurTyrkjarániðKænugarðurVigdís FinnbogadóttirWrocławManchester UnitedKaupmannahöfnÁrni MagnússonRaufarhöfnÞýskaSuðurlandsskjálftinn 29. maí 2008TölfræðiSexGreinirLandselurJón ÓlafssonListi yfir lönd eftir mannfjöldaKópavogurKubbatónlistFenrisúlfurSpilavítiVextirFaðir vorDavíð Oddsson18 KonurNígeríaKötturKínverskaHaraldur ÞorleifssonSérsveit ríkislögreglustjóraVíetnamstríðiðNeskaupstaðurNasismiFrançois WalthéryKlara Ósk ElíasdóttirHlutabréf11. marsSérhljóðInternet Movie DatabaseKólumbíaGuðmundur FinnbogasonMiklihvellurDrangajökullPóllandÍslensk sveitarfélög eftir mannfjöldaKreppan miklaFlugstöð Leifs EiríkssonarJón Sigurðsson (forseti)BlönduhlíðEiginnafn1900MeðaltalMicrosoftRagnarökWhitney HoustonSúðavíkurhreppurVeldi (stærðfræði)Egill Skalla-GrímssonHryggsúlaMichael JacksonLaosKróatíaNorður-AmeríkaSkapabarmarKanaríeyjarSturlungaöldÍslenska kvótakerfið20. öldinC++Hallgrímur PéturssonHvítfuraFriggPíka🡆 More