Orkneyjajarlar

Orkneyjajarlar voru upphaflega norskir jarlar sem fóru með völd í Orkneyjum, Hjaltlandi og hluta af Katanesi og Suðurlandi nyrst á Skotlandi.

Jarlarnir voru löngum nokkuð sjálfstæðir, en stjórnuðu þó Orkneyjum og Hjaltlandi í umboði Noregskonungs. Sum þeirra svæða sem þeir réðu yfir á meginlandi Skotlands þágu þeir síðar í lén af Skotakonungi. Um skeið réðu jarlarnir einnig Suðureyjum.

Norskir Orkneyjajarlar

Fyrsti Orkneyjajarlinn var Rögnvaldur Eysteinsson Mærajarl (í Noregi). Haraldur hárfagri gaf honum jarlsnafn þar í sonarbætur, en Rögnvaldur vildi ekki setjast að í eyjunum og gaf Sigurði bróður sínum jarlsdæmið sama dag. Jarlarnir sem á eftir fylgdu, allt til 1232, voru afkomendur þeirra Rögnvalds og Sigurðar. Af Rögnvaldi voru einnig komnir Rúðujarlar, eða Hertogar af Normandí.

Um 1195 tóku Orkneyingar þátt í uppreisn gegn Sverri konungi, og sendu til Noregs herflokk sem kallaður var „Eyjarskeggjar“. Sverrir vann sigur á þeim og refsaði Orkneyingum með því að slá eign sinni á helstu höfðingjasetur í eyjunum. Jarlinn varð þá formlega norskur lénsmaður og Hjaltland tekið undan hans stjórn. Upp úr því fór jarlsdæmið að veikjast verulega.

Norska jarlsdæmið í Orkneyjum var oft undir samstjórn bræðra eða frænda.

  • Um 885 Rögnvaldur Eysteinsson Mærajarl, var Orkneyjajarl í einn dag, dó um 890
  • um 885–um 890 Sigurður Eysteinsson (Sigurður hinn ríki, þ.e. voldugi), bróðir Rögnvalds
  • um 890–um 891 Guthormur Sigurðarson
  • um 891–um 892 Hallaður Rögnvaldsson
  • um 893–um 946 Torf-Einar Rögnvaldsson
  • um 946–954 Arnkell Torf-Einarsson, (féll 954 í sömu orustu og Eiríkur blóðöx)
  • um 946–954 Erlendur Torf-Einarsson, (féll 954 í sömu orustu og Eiríkur blóðöx)
  • Eftir fall Eiríks blóðaxar 954, var Gunnhildur drottning nokkur ár í Orkneyjum, ásamt sonum sínum, en Þorfinnur hausakljúfur mun hafa verið jarl að nafninu til.
  • um 954–um 976 Þorfinnur Torf-Einarsson eða Þorfinnur hausakljúfur
  • um 976–um 977 Arnfinnur Þorfinnsson, e.t.v. með Hávarði, Ljóti og Hlöðvi
  • um 977–um 978 Hávarður Þorfinnsson hinn ársæli, e.t.v. með Ljóti og Hlöðvi
  • um 978–um 980 Ljótur Þorfinnsson, e.t.v. með Hlöðvi
  • um 980–um 991 Hlöðvir Þorfinnsson
  • 9911014 Sigurður Hlödvisson (Sigurður digri)
  • 1014–1030 Brúsi Sigurðarson, með Einari, Sumarliða og Þorfinni
  • 1014–1020 Einar Sigurðarson (Einar rangmunnur), með Brúsa og Sumarliða
  • 1014–1015 Sumarliði Sigurðarson, með Brúsa og Einari
  • 1020–1064 Þorfinnur Sigurðarson (Þorfinnur hinn ríki), með Brúsa og Rögnvaldi
  • 1037–1045 – Rögnvaldur Brúsason, jarl með Þorfinni
  • 1064–1098 Páll Þorfinnsson og Erlendur Þorfinnsson
  • 1098–1103 Sigurður Jórsalafari (Sigurður Magnússon), síðar konungur Noregs
  • 1103–1123 Hákon Pálsson, sonur Páls Þorfinssonar, jarl með Magnúsi
  • 1108–1117Magnús Erlendsson (Magnús Eyjajarl eða Magnús helgi), jarl með Hákoni
  • 1122–1137 Páll Hákonarson hinn ómálgi, með Haraldi
  • 1122–1127 – Haraldur Hákonarson hinn sléttmáli, með Páli
  • 1134–1206 Haraldur Maddaðarson, með Rögnvaldi, Erlendi og Haraldi Eiríkssyni
  • 1136–1158 – Rögnvaldur Kali Kolsson eða Rögnvaldur hinn helgi, jarl með Haraldi Maddaðarsyni og Erlendi
  • 1151–1154 – Erlendur Haraldsson, sonur Haralds Hákonarsonar, jarl með Haraldi Maddaðarsyni, í fjarveru Rögnvalds Kala
  • 1191–1194 – Haraldur Eiríksson, jarl á Katanesi með Haraldi Maddaðarsyni, dóttursonur Rögnvalds Kala,
  • 1206–1231 Jón Haraldsson, með Davíð
  • 1206–1214 – Davíð Haraldsson, með Jóni bróður sínum

Skoskir jarlar undir norsku krúnunni

Árið 1231 dó karlleggurinn af norsku jarlaættinni út. Árið eftir fórst skip með öllum helstu höfðingjum eyjanna, sem voru á leið frá Noregi. Hákon gamli Noregskonungur brá þá á það ráð (1236) að skipa sem jarl mann af skoskri höfðingjaætt (Angus-jarlar), sem átti ættir að rekja til Orkneyjajarla, og fóru afkomendur hans með völd í Orkneyjum a.m.k. til 1321. Þá voru tengslin við Noreg farin að trosna, og fór svo að Orkneyjar komust undir yfirráð Skotakonungs.

Angus-jarlar

  • 1236–1239 Magnús II, Orkneyjajarl, sonur Gilberts eða Gilliberts jarls af Angus
  • 1239–12?? Gillibert, Orkneyjajarl, líklega sonur Magnúsar
  • 12??–1256 Gibbon, Orkneyjajarl, e.t.v. sami maður og Gillibert
  • 1256–1273 Magnús Gibbonsson Orkneyjajarl
  • 1273–1284 Magnús Magnússon Orkneyjajarl
  • 1284–um 1300 Jón Magnússon Orkneyjajarl
  • um 1300–1321 Magnús Jónsson Orkneyjajarl

Skoskir jarlar

Strathearn- og Sinclair-jarlar

  • 1331–1350 Maol Íosa eða Malise 5. af Strathearn, (Strathearn 1330–1334; Katanes 1331–1334)
  • 1353–1357 Erengisle Suneson, tengdasonur Maol Iosa, sænskur að ætt, (aðeins Orkneyjar)
  • 1375–1379 Alexander de l'Ard, dóttursonur Maol Íosa, (Katanes 1350–1375)
  • 1379–1401 Henry Sinclair 1. Orkneyjajarl, dóttursonur Maol Íosa, (Orkneyjar og Hjaltland)
  • 1401–1420 Henry Sinclair 2. Orkneyjajarl, (Orkneyjar og Hjaltland)
  • 1423–1434 David Menzies, settur yfir eyjarnar af Noregskonungi
  • 1434–1471 William Sinclair, (Orkneyjar og Hjaltland; Katanes 1455–1476)

Orkneyjajarlar á síðari öldum

Hertogi af Orkneyjum (1567)

  • 1567 James Hepburn, greifi af Bothwell og hertogi af Orkneyjum

Stewart-jarlar, önnur endurreisn jarlsdæmisins (1581)

Orkneyjajarlar, endurreistir í þriðja sinn (1696)

  • 1696–1737 George Hamilton, 1. jarl af Orkneyjum (1666-1737)
  • 1737–1756 Anne O'Brien, 2. greifynja af Orkneyjum (d. 1756)
  • 1756–1791 Mary O'Brien, 3. greifynja af Orkneyjum (um 1721-1791)
  • 1791–1831 Mary FitzMaurice, 4. greifynja af Orkneyjum (1755-1831)
  • 1831–1877 Thomas John Hamilton FitzMaurice, 5. jarl af Orkneyjum (1803-1877)
  • 1877–1889 George William Hamilton FitzMaurice, 6. jarl af Orkneyjum (1827-1889)
  • 1889–1951 Edmond Walter FitzMaurice, 7. jarl af Orkneyjum (1867-1951)
  • 1951–1998 Cecil O'Bryen FitzMaurice, 8. jarl af Orkneyjum (1919-1998)
  • 1998–2??? Oliver Peter St John, 9. jarl af Orkneyjum (f. 1938)

Líklegur arftaki, Oliver St John, greifi af Kirkjuvogi (f. 1969)

Tengt efni

Heimildir

  • Fyrirmynd greinarinnar var „Earl of Orkney“ á ensku útgáfu Wiki. Sótt 21. september 2008.
  • Fyrirmynd greinarinnar var „Comte des Orcades“ á frönsku útgáfu Wiki. Sótt 23. október 2008.
  • Finnbogi Guðmundsson (útg.): Orkneyinga saga, Rvík 1965.

Tags:

Orkneyjajarlar Norskir Orkneyjajarlar Skoskir jarlar undir norsku krúnunniOrkneyjajarlar Skoskir jarlarOrkneyjajarlar á síðari öldumOrkneyjajarlar Tengt efniOrkneyjajarlar HeimildirOrkneyjajarlarHjaltlandJarl (titill)LénsmaðurNoregurOrkneyjarSkotlandSuðureyjar

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

UrriðiPáskadagurSkapabarmarSveitarfélagið StykkishólmurÍsland í seinni heimsstyrjöldinniListi yfir grunnskóla á ÍslandiSúðavíkurhreppurZListi yfir íslensk eiginnöfn karlmannaFákeppniC++EinmánuðurEiginnafnListi yfir risaeðlurPortúgalDyrfjöllFrançois WalthéryPáskarNoregurAgnes MagnúsdóttirKoltvísýringurReykjavíkurkjördæmi suðurStykkishólmurKanadaGiordano BrunoEmomali RahmonSuðurskautslandiðSóley TómasdóttirSkotfæriSpendýrÁratugurRíkisútvarpiðIðunn (norræn goðafræði)Portúgalskur skútiBítlarnirHugrofVigur (eyja)Elísabet 2. BretadrottningLögmál FaradaysBenjamín dúfaBandamenn (seinni heimsstyrjöldin)SkyrbjúgurKobe BryantEyjafjallajökullPersóna (málfræði)GyðingarMeltingarkerfiðHúsavíkÞórshöfn (Færeyjum)ÚranusKínaLottóTaílandRómIndóevrópsk tungumálBragfræðiNýja-SjálandJörðinGasstöð ReykjavíkurÓðinnEggjastokkarSíle29. marsDavíð StefánssonJanryHellissandurForsíðaFallin spýtaGíbraltarListi yfir tinda á Íslandi eftir hæðEilífðarhyggjaJosip Broz TitoEllen DeGeneresLondonGagnagrunnur🡆 More