NCIS: Los Angeles (Naval Criminal Investigative Service: Los Angeles) er bandarískur sjónvarpsþáttur sem fjallar um leynilega rannsóknardeild innan bandaríska sjóhersins.
Höfundurinn að þættinum er Shane Brennan.
NCIS: Los Angeles | |
---|---|
Einnig þekkt sem | NCIS: OSP NCIS: Undercover NCIS: Legend NCIS: LA |
Tegund | Lögreglurannsóknir, Drama, Bandaríski sjóherinn |
Þróun | Shane Brennan |
Leikarar | Chris O´Donnell LL Cool J Daniela Ruah Eric Christian Olsen Linda Hunt Peter Cambor Adam Jamal Craig Barrett Foa Renée Felice Smith Rocky Carroll |
Upprunaland | Bandaríkin |
Frummál | Enska |
Fjöldi þáttaraða | 14 |
Fjöldi þátta | 323 |
Framleiðsla | |
Staðsetning | Los Angeles |
Lengd þáttar | 42-44 mín |
Útsending | |
Upprunaleg sjónvarpsstöð | CBS |
Myndframsetning | 480i (SDTV) 1081i (HDTV) |
Sýnt | 22. september 2009- – |
Tenglar | |
Vefsíða | |
IMDb tengill |
Fyrstu þættirnir voru sýndir 28. apríl og 5. maí 2009 í tveggja parta söguþráði í NCIS.
Til þessa hafa fjórar þáttaraðir verið sýndar og var fimmta þáttaröðin frumsýnd 24. september 2013.
Þátturinn er framleiddur af Shane Brennan Productions í samvinnu við CBS Television Studios (2009–til dags).
NCIS: Los Angeles er aðallega tekinn upp í Los Angeles, Bandaríkjunum.
NCIS: Los Angeles fylgir eftir liði alríkisfulltrúa innan leynilegrar rannsóknardeildar bandaríska sjóhersins sem staðsett er í Los Angeles. Deildin sérhæfir sig í leyniaðgerðum þar sem fulltrúar hennar eru sérhæfðir í leyniverkefnum. NCIS liðið er stýrt af G. Callen (Chris O´Donnell). Lið Callens inniheldur Sam Hanna (LL Cool J), Kensi Blye (Daniela Ruah) og LAPD lögreglumanninn Marty Deeks (Eric Christian Olsen) sem kom í staðinn fyrir Dominic Vail (Adam Jamal Craig) sem var drepinn í enda fyrstu þáttaraðarinnar. Aðstoðarmenn liðsins eru tækni-og tölvusérfræðingarnir Eric Beale (Barrett Foa) og Nell Jones (Renée Felice Smith). Yfirmaður deildarinnar er Henrietta Hetty Lange (Linda Hunt).
NCIS: Los Angeles var gerður út frá tveimur þáttum í sjöttu þáttaröð af NCIS titlaðir Legend (Part 1) og Legend (Part 2) sem voru frumsýndir 28. apríl og 5. maí 2009. Í þeim þáttum voru Callen, Sam, Kensi og Eric kynnt til sögunnar.
CBS tilkynnti þann 18. ágúst 2011 að söguþráðsskipti yrðu á milli NCIS: Los Angeles og Hawaii Five-0 þar sem Daniela Ruah myndi koma fram sem gestaleikari. Þann 11. janúar, 2012, tilkynnti CBS að söguþráðsskitpi yrðu á milli NCIS: Los Angeles og Hawaii Five-0 þar sem Daniel Dae Kim og Scott Caan myndu koma fram í þætti í maí, á meðan Chris O´Donnell og LL Cool J myndu koma fram í þætti af Hawaii Five-0.
Leikari | Persóna | Starf | Sería | ||||
---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | |||
Chris O'Donnell | G. Callen | Sérstakur Alríkisfullrúi og yfirmaður liðsins | Aðal | ||||
LL Cool J | Sam Hanna | Sérstakur Alríkisfulltrúi og aðstoðaryfirmaður liðsins | Aðal | ||||
Daniela Ruah | Kensi Blye | Sérstakur Alríkisfulltrúi | Aðal | ||||
Eric Christian Olsen | Marty Deeks | NCIS-LAPD tengiliður | Auka | Aðal | |||
Barrett Foa | Eric Beale | Tækni-og tölvusérfræðingur | Aðal | ||||
Renée Felice Smith | Nell Jones | Tækni-og tölvusérfræðingur | Aðal | ||||
Linda Hunt | Henrietta "Hetty" Lange | Yfirmaður Los Angeles deildarinnar | Aðal | ||||
Peter Cambor | Nate Getz | Sálfræðingur | Aðal | Auka | |||
Adam Jamal Craig | Dominic Vail | Sérstakur Alríkisfulltrúi | Aðal |
NCIS: Los Angeles og persónur hans voru kynntar í sjöttu þáttaröðinni af NCIS í þáttunum "Legend (Part 1)" og "Legend (Part 2)". Persónan Lara Macy kemur ekki fram í seríunni þar sem hún var ráðin til Marseille, sem yfirmaður NCIS deildarinnar þar.
NCIS liðið rannsakar morð á sjóliða,Gibbs og McGee fara til Los Angeles til að vinna með NCIS: Los Angeles deildinni. Svo virðist sem dauði sjóliðans tengist vopnasala að nafni Liam. NCIS fulltrúinn G. Callen (Chris O´Donnell) tekur að sér að leika Liam í leit sinni að morðingjanum.
Á samatíma í Washington þá reynir Tony með aðstoð Abby að finna út hver kærasti Zivu er. Eftir að hafa horft á upptöku af Zivu við störf í Marokkó, þá uppgvöta Tony og Abby að kærasti Zivu er Mossad fulltrúinn Michael Rivkin.
Þegar Ziva ber kennsl á Rivkin sem fulltrúa Mossad við störf í Bandaríkjunum, þá byrjar Tony að spyrja sjálfan sig um tryggð hennar við NCIS. Á samatíma í Los Angeles þá reynir Callen og Gibbs að koma í veg fyrir að hryðjuverkahópur komist yfir vopn til að gera árás á Los Angeles. Sálfræðingurinn Nate Getz (Peter Cambor) kemst að sannleikanum um Gibbs og NCIS fulltrúann Lara Macy (Louise Lombard). Þátturinn endar á því að Callen er skotinn mörgum sinnum í brjóstið og ekki er vitað með ástand hans.
Fyrstu fjórar seríunnar af NCIS: Los Angeles hafa verið gefnar út á svæðum 1, 2 og 4.
Í fyrstu seríunni á svæðum 1, 2 og 4 má finna fyrstu þættina í sjöttu seríu af NCIS.
DVD nafn | Svæði 1 | Svæði 2 | Svæði 4 |
---|---|---|---|
Sería 1 | 31. ágúst, 2010 | 02. ágúst, 2010 | 19. ágúst, 2010 |
Sería 2 | 23. ágúst, 2011 | 22. ágúst, 2011 | 01. september, 2011 |
Sería 3 | 21. ágúst 2012 | 27. ágúst 2012 | 01. ágúst 2012 |
Sería 4 | 20. ágúst 2013 | 19. ágúst 2013 | 14. ágúst 2013 |
ASCAP Film and Television Music verðlaunin
California on Location verðlaunin
Emmy verðlaunin
Golden Globes, Potrúgal
Image verðlaunin
People´s Choice verðlaunin
Teen Choice verðlaunin
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article NCIS: Los Angeles, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.