Michael Daniel Higgins (f.
18. apríl 1941) er írskur stjórnmálamaður sem hefur verið forseti Írlands frá árinu 2011. Higgins er jafnframt ljóðskáld, félagsfræðingur og útvarpsmaður. Hann sat á neðri deild írska þingsins fyrir kjördæmið Vestur-Galway og var menningarmálaráðherra Írlands frá 1993 til 1997. Higgins var formaður Verkamannaflokksins frá 2003 til 2011 en hann sagði af sér því embætti eftir að hann var kjörinn forseti Írlands það ár.
Michael D. Higgins | |
---|---|
Forseti Írlands | |
Núverandi | |
Tók við embætti 11. nóvember 2011 | |
Forsætisráðherra | Enda Kenny Leo Varadkar Micheál Martin Simon Harris |
Forveri | Mary McAleese |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 18. apríl 1941 Limerick, Írlandi |
Þjóðerni | Írskur |
Stjórnmálaflokkur | Verkamannaflokkurinn (1968–2011) Óflokksbundinn (frá 2011) |
Maki | Sabina Coyne (g. 1974) |
Trúarbrögð | Kaþólskur |
Börn | 4 |
Háskóli | NUI Galway Háskólinn í Indiana Háskólinn í Manchester |
Undirskrift | |
Vefsíða | president.ie |
Michael D. Higgins fæddist í Limerick á Írlandi. Faðir hans var áfengissjúkur og átti við ýmis heilsuvandamál að stríða og því ákvað móðir Michaels að senda hann í fóstur til frænda síns, sem var bóndi. Systur Michaels voru áfram hjá foreldrum þeirra í Limerick.
Higgins nam við háskólann Saint Flannan í Ennis, í írska þjóðarháskólanum í Galway, í Háskólanum í Indiana og loks í Háskólanum í Manchester. Á námsárum sínum hóf Higgins þátttöku í stjórnmálum og var forseti stúdentasambandsins í Galway-háskóla frá 1964 til 1965. Hann kenndi jafnframt áfanga í stjórnmálafræði við skólann.
Higgins talar oft írsku.
Þann 19. júní árið 2011 vann Higgins útnefningu þingmanna Verkamannaflokksins til að gerast frambjóðandi þeirra í forsetakosningunum sem haldnar voru síðar sama ár. Hann hafði lýst yfir vilja til að bjóða sig fram í september árið áður og keppti um tilnefninguna við tvo aðra frambjóðandur: Fergus Finley, formann góðgerðasamtakanna Barnardo's, og fyrrum þingkonuna Kathleen O'Meara.
Í forsetakosningunum hlaut Higgins 56,8 % atkvæða í lokatalningunni og sigraði mótframbjóðandann Seán Gallagher. Í fyrri umferð hafði Higgins hlotið 39,6 % atkvæða, ellefu prósentum meira en Gallagher. Higgins var því kjörinn forseti og varð fyrsti forseti Írlands úr Verkamannaflokknum.
Í sigurræðu sinni eftir kosningarnar, sem Higgins byrjaði og lauk á írsku, fullvissaði hann Íra um að hann myndi vera „forseti allrar þjóðarinnar“ og sagði sig um leið úr Verkamannaflokknum þar sem „forsetaembættið [væri] óflokksbundin stofnun“. Higgins var svarinn í embætti forseta þann 11. nóvember 2011 í Dyflinnarkastala
Þann 8. apríl árið 2014 þáði Higgins heimboð til Elísabetar 2. Bretadrottningar í Windsor-kastala. Þetta var í fyrsta skipti sem forseti Írlands fór í opinbera heimsókn til Bretlands.
Higgins bauð sig fram til annars kjörtímabils árið 2018 og vann stórsigur með 56 % atkvæða í fyrstu umferð. Frambjóðandinn í öðru sæti, Peter Casey, hlaut aðeins 23%. Higgins hóf annað kjörtímabil sitt formlega þann 11. nóvember 2018.
Fyrirrennari: Mary McAleese |
| Eftirmaður: Enn í embætti |
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Michael D. Higgins, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.