Lilja Dögg Alfreðsdóttir (f.
4. október 1973) er menningar- og ferðamálaráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins. Áður var hún utanríkisráðherra og menntamálaráðherra. Lilja er 9. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis suður.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir | |
| |
Fæðingardagur: | 4. október 1973 |
---|---|
Fæðingarstaður: | Reykjavík, Íslandi |
4. þingmaður Reykavíkurkjördæmis suður | |
Flokkur: | Framsóknarflokkurinn |
Þingsetutímabil | |
2016 | í Reykv. s. fyrir Framsfl. ✽ |
2016-2017 | í Reykv. s. fyrir Framsfl. |
2017-2021 | í Reykv. s. fyrir Framsfl. ✽ |
2021- | í Reykv. s. fyrir Framsfl. ✽ |
✽ = stjórnarsinni | |
Embætti | |
2016-2017 | Utanríkisráðherra |
2017-2021 | Mennta- og menningarmálaráðherra |
2021- | Menningar- og viðskiptaráðherra |
Tenglar | |
Æviágrip á vef Alþingis |
Lilja lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1973, BA í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands árið 1998 og lauk síðar MA-gráðu í alþjóðahagfræði frá Columbia háskóla í Bandaríkjunum og hefur starfað hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, Seðlabanka Íslands og var efnahagslegur ráðgjafi Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra.
Lilja var utanríkisráðherra í ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks 2016-2017 og hefur verið varaformaður Framsóknarflokksins og alþingismaður síðan í október 2016, var mennta- og menningarmálaráðherra frá 2017-2021 og er menningar- og ferðamálaráðherra frá nóvember 2021.
Lilja er dóttir Alfreðs Þorsteinssonar fyrrum borgarfulltrúa Framsóknarflokksins og Guðnýjar Kristjánsdóttur prentsmiðs. Lilja er gift Magnúsi Óskari Hafsteinssyni, hagfræðingi í fjármálaráðuneytinu og eiga þau tvö börn.
Í könnun sem gerð var á ánægju kjósenda með ráðherra í ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur í apríl 2019 mældist Lilja vinsælasti ráðherra ríkisstjórnarinnar.
Fyrirrennari: Gunnar Bragi Sveinsson |
| Eftirmaður: Guðlaugur Þór Þórðarson | |||
Fyrirrennari: Kristján Þór Júlíusson |
| Eftirmaður: Enn í embætti |
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Lilja Dögg Alfreðsdóttir, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.