Kristín Eysteinsdóttir: íslenskur leikstjóri

Kristín Eysteinsdóttir (f.

2. febrúar 1974) er íslenskur leikstjóri og fyrrverandi leikhússtjóri Borgarleikhússins.

Kristín lauk BA-prófi í dramatúrgíu frá Árósarháskóla í Danmörku árið 2002 og meistaragráðu í leikstjórn frá Goldsmiths, University of London árið 2007.

Kristín hefur leikstýrt fjölda verka, m.a. í Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu, Hafnarfjarðarleikhúsinu og Nemendaleikhúsinu. Hún var fastráðin leikstjóri við Borgarleikhúsið frá 2008-2014 en var ráðin leikhússtjóri Borgarleikhússins árið 2014. Kristín hlaut Grímuna, sviðslistaverðlan Leiklistarsambands Íslands sem leikstjóri ársins árið 2008 fyrir leikstjórn sína á sýningunni Sá ljóti í Þjóðleikhúsinu.

Áður en Kristín snéri sér að leiklistinni starfaði hún á vettvangi tónlistar, m.a. sem söngkona, trúbador og laga- og textasmiður. Árið 1995 gaf hún út eigin breiðskífu, Litir þar sem hún flutti eigin lög og texta og frá 1996-2000 var hún söngkona kvennahljómsveitarinnar Ótukt.

Eiginkona Kristínar er Katrín Oddsdóttir lögfræðingur og eiga þær tvö börn.

Tilvísanir

Tags:

19742. febrúarBorgarleikhúsið

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

GreifarnirKlaustursupptökurnarÍslensk sveitarfélög eftir flatarmáliListi yfir þjóðvegi á ÍslandiGunnar HámundarsonApp StoreMaðurZHornsíliMenntaskólinn við SundNoregurHeklaHæstiréttur ÍslandsLissabonListi yfir íslensk póstnúmerListi yfir íslensk eiginnöfn karlmannaMeþódismiKnattspyrnaListi yfir íslenska sjónvarpsþættiListi yfir íslensk eiginnöfn kvenmannaKárahnjúkavirkjunHelsinkiGeirfuglFrosinnLHalldór LaxnessSnorri SturlusonUpplyfting - Í sumarskapiHrafnVilhjálmur Vilhjálmsson (söngvari)Verg landsframleiðsla2023StyrmirAlþingiskosningar 2021ÍslandHeimdallurÞingvellirSöngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðvaGóði hirðirinnKanaríeyjarB-vítamínBrisVafrakakaReykjavíkKókaínTölvaKynseginKatrín JakobsdóttirFyrri heimsstyrjöldinÍslendingasögurBretlandGrikkland hið fornaÝmsir - Dýrin í Hálsaskógi (plata)XXX RottweilerhundarKalda stríðiðUllVesturfararGeitVísir (vefmiðill)Agnes MagnúsdóttirListi yfir morð á Íslandi frá 1970–1999LandsbankinnJón Múli ÁrnasonÚrvalsdeild karla í körfuknattleikEdgar Allan PoeSveinn BjörnssonÁsgeir JónssonSvampur SveinssonPÍslensk sveitarfélög eftir mannfjöldaEiginnafnForsíðaHáskóli Íslands🡆 More