Kathryn Ann Bigelow (f.
27. nóvember 1951) er bandarískur kvikmyndaleikstjóri, framleiðandi og handritshöfundur sem er þekkt fyrir óhefðbundnar spennumyndir. Þekktustu myndir hennar eru vampírumyndin Near Dark frá 1987, glæpatryllirinn Þrumugnýr (Point Break) frá 1991, framtíðartryllirinn Skrýtnir dagar (Strange Days) frá 1995, Brimaldan stríða (The Weight of Water) frá 2000, og stríðsmyndirnar K-19: The Widowmaker frá 2002, Sprengjusveitin (The Hurt Locker) frá 2009 og Zero Dark Thirty frá 2012. Hún er fyrsta konan sem unnið hefur Óskarsverðlaun sem besti leikstjóri, en hún vann þau 2010 fyrir Sprengjusveitina.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Kathryn Bigelow, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.