Jósefína Danaprinsessa skírð Josephine Sophia Ivalo Mathilda fæddist þann 8.
janúar 2011 í Kaupmannahöfn. Hún er fjórða og yngsta barn Friðriks 10. Danakonungs og Maríu Danadrottningar en systkini hennar eru Kristján krónprins, Ísabella prinsessa og tvíbura bróðir hennar Vincent prins.
Prinsessan var skírð ásamt tvíburabróður sínum, 14. apríl 2011, í kapellu í Holmen kirkjunni í Kaupmannahöfn. Guðforeldar hennar eru María prinsessa (eiginkona föðurbróður hennar Jóakims Danaprins), frænka hennar úr móðurætt, auk fjögurra annarra vina foreldra hennar. Jósefína var fyrsta barn dansks ríkisarfa síðan 1870 sem klæddist ekki hinum konunglega skírnarkjól við skírn þar sem bróðir hennar klæddist þeim skírnarkjól. Þess í stað klæddist hún skírnarkjól sem kom frá langömmu hennar Ingiríði Danadrottningu.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Jósefína Danaprinsessa, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.