Hvalveiðar eru veiðar á hvölum.
Slíkar veiðar hafa verið stundaðar frá örófi alda en náðu hámarki á 19. öld og fyrri hluta 20. aldar vegna mikillar eftirspurnar eftir lýsi sem unnið var úr hvalspiki, þá gengu veiðarnar mjög nærri mörgum hvalategundum. Í seinni tíð hafa hvalveiðar þó aðallega verið stundaðar vegna kjötsins. Alþjóðahvalveiðiráðið var stofnað 1946 til að hafa stjórn á hvalveiðum á heimsvísu. Árið 1986 bannaði ráðið svo allar hvalveiðar í atvinnuskyni en harðar deilur hafa staðið um bannið allar götur síðan. Undanþága frá því var þó veitt vegna svokallaðra vísindaveiða og einnig vegna veiða frumbyggja.
Nú á dögum eru hvalveiðar stundaðar af nokkrum ríkjum:
Hvalir voru verðmætt veiðifang frá því að Ísland tók að byggjast. Framan af voru hvalveiðar Íslendinga tækifærisveiðar fremur en atvinnuveiðar. Íslendingar nýttu að mestu hvalreka og veiddu aðeins hvali í litlum mæli fram á 20. öld. Lengst af voru það erlendar þjóðir sem veiddu hvali í atvinnuskyni við Íslandsstrendur. Fyrst voru það Baskar og Hollendingar á 17. öld og síðan Norðmenn 200 árum seinna. Íslendingar fóru hins vegar ekki að veiða hvali í atvinnuskyni fyrr en eftir fyrri heimsstyrjöldina.
Hvalveiðar erlendra manna á tímabilinu 1600-1915 hafði áhrif á íslenskt samfélag. Gátu Íslendingar til að mynda stundað ólöglega verslun við erlenda hvalveiðimenn á tímum einokunarinnar og kynntu Baskar og Hollendingar Íslendingum meðal annars fyrir tóbaksreykingum. Þegar Norðmenn hófu hvalveiðar við Ísland á 19. öld kenndu þeir Íslendingum t.d. að reka stórútgerð. Þeir höfðu jafnframt menningarleg og pólitísk áhrif á líf fólks á Íslandi.
Aðalgrein Áhrif erlendra hvalveiðimanna á íslenskt samfélag, 1600-1915
Áður fyrr var talið að erlendir hvalveiðimenn höfðu ekki byggt landstöðvar á Íslandi og stundað þar lýsisbræðslu. Fornleifarannsóknir hafa þó sýnt að Baskar reistu að minnsta kosti þrjár slíkar á Vestfjörðum á 17. öld, það er á Kóngsey, Strákatanga og Strákey. Á árunum 2005-2010 fór fram fornleifauppgröftur á hvalstöðinni á Strákatanga og fannst þar mikið magn tóbakspípa. Gefur það til kynna að erlendu hvalveiðimennirnir á Strákatanga hafi flutt inn tóbak og selt Íslendingum á 17. öld.
Aðalgrein Hvalstöðin á Strákatangi
Norðmenn hófu hvalveiðar við Ísland árið 1883. Fyrst byggðu þeir átta hvalstöðvar á Vestfjörðum. Á liðlega einum áratugi áttu þeir eftir að ganga svo nærri hvalstofninum við Vestfirði að fáir voru eftir á miðunum svo að þeir færðu sig um set til Austurlands í von um betri veiðar. Búseta norsku hvalveiðimannanna var þó ætíð umdeild og voru stórhvalaveiðar bannaðar á Íslandi árið 1915 þegar ljóst þótti að hvalstofninn væri að hverfa sökum veiða Norðmanna.
Aðalgrein Hvalveiðar Norðmanna við Vestfirði á 19. öld
Caroline Paulsen, Magnús Rafnsson og Ragnar Edvardsson. (2008). Foreign Whaling in Iceland: Archaeological Excavations at Strákatangi in Hveravík, Kaldrananeshreppi 2007. Data Structure Report. NV nr. 5-08. Bolungarvík: Náttúrustofa Vestfjarða.
Gylfi Björn Helgason. (2015). Hvalveiðar Norðmanna við Vestfirði á 19. öld[óvirkur tengill]. Bolungarvík: Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Vestfjörðum.
Magnús Rafnsson. (2015). Cultural Exchange and Socialization in the Westfjords. Í Xabier Irujo og Viola G. Miglio (ritstj.), Basque Whaling in Iceland in the XVII Century: Legal Organization, Cultural Exchange and Conflicts of the Basque Fisheries in the North Atlantic (bls. 291-318). Santa Barbara: University of California.
Ragnar Edvardsson. (2015). The Strákatangi Whaling Project in Strandasýsla: An Archaeological Site in the Westfjords[óvirkur tengill]. Í Xabier Irujo og Viola G. Miglio (ritstj.), Basque Whaling in Iceland in the XVII Century: Legal Organization, Cultural Exchange and Conflicts of the Basque Fisheries in the North Atlantic (bls. 319-344). Santa Barbara: University of California.
Trausti Einarsson. (1987). Hvalveiðar við Ísland 1600-1939. Í Bergsteinn Jónsson (ritstj.), Studia historica: 8. bindi. Reykjavík: Bókaútgáfa Menningarsjóðs.
Fornleifur. (2014, 3. febrúar). Hvalasaga - 1. hluti. Sótt 2. maí 2016 af http://fornleifur.blog.is/blog/fornleifur/entry/1352233/.
Ragnar Edvardsson og Magnús Rafnsson. (2011). Hvalveiðar útlendinga á 17. öld: Fornleifarannsóknir á Strákatanga 2005-2010. Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 2011, 145-166.
Smári Geirsson. (2015). Stórhvalaveiðar við Ísland til 1915. Reykjavík: Sögufélag.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Hvalveiðar, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.