Helgi og Hljóðfæraleikararnir ('H&H') er hljómsveit úr Eyjafjarðarsveit.
Upphaf sveitarinnar má rekja til ársins 1987 þegar að elstu meðlimir hennar voru á lokaárum grunnskólaferils síns. Stofnmeðlimir sveitarinnar voru Helgi Þórsson söngvari, Brynjólfur Brynjólfsson gítarleikari, Atli Rúnarsson trommuleikari og Bergsveinn Þórsson bassaleikari. Þeir eru allir enn meðlimir hljómsveitarinnar.
Helgi og Hljóðfæraleikarnir | |
---|---|
Uppruni | Eyjafjarðarsveit |
Ár | 1987-1993 og 1997-núverandi |
Stefnur | Rokk, pönk, þjóðlög, akústísk tónlist |
Útgefandi | Helgi og Hljóðfæraleikararnir |
Meðlimir | Helgi Þórsson Brynjólfur Brynjólfsson Atli Rúnarsson Bergsveinn Þórsson Hjálmar Brynjólfsson |
Fyrri meðlimir | Gunnur Ýr Stefánsdóttir (1997-2002 (með hléum), 2006-2012) Kristín Þóra Haraldsdóttir (1997-2002 (með hléum)) Hjálmar S. Brynjólfsson (1998-2008 (með hléum)) Álfheiður Guðmundsdóttir (1999-2000) Katrín Harðardóttir (1999-2000) Ola Lotsberg (1999-2000) George Hollanders (2000) Rósa Björg Ásgeirsdóttir (2006-2008) Þórður Hjálmarsson (2012-2018) Wolfgang Frosti Sahr (2014-2020) |
Árið 1991 gaf hljómsveitin út rokkóperuna Landnám sem tekin var upp á einu bretti, þ.e. í einni töku. Á henni mátti heyra leikið á blokkflautu í bland við hefðbundnari rokkhljóðfæri. Sú útgáfa var þó að sögn meðlima einungis undirbúningur fyrir breiðskífu sem kom út á árið 1993 og var samnefnd hljómsveitinni. Í dagblaðinu Degi var platan valin ein af tíu bestu plötunum árið 1993. Stuttu eftir útgáfu hennar fór hljómsveitin í pásu, en spilaði af og til á tónleikum.
Eftir að hafa starfað sundurslitið í rúm fjögur ár kom hljómsveitin saman á ný árið 1997. Rafmagnshljóðfærin voru lögð til hliðar um tíma í staðinn fyrir akústísk hljóðfæri, kassagítara, kontrabassa o.fl. Bættust þá Kristín Þóra Haraldsdóttir fiðluleikari og Gunnur Ýr Stefánsdóttir flautuleikari í hópinn. Hjálmar Brynjólfsson bættist svo við ári síðar á slagverk og harmonikku. Hóf hljómsveitin að leika ótt og títt á tónleikum um land allt. Stuttu eftir endurfundi hljómsveitarinnar gaf hún út disk sem nefndist Endanleg hamingja.
Hljómsveitin hefur verið virk við plötuútgáfur og tónleikahald æ síðan.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Helgi og hljóðfæraleikararnir, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.