Friðland að Fjallabaki eða Fjallabak er hluti hálendis Íslands sem er norðan Mýrdalsjökuls norður til Landmannalauga og Hrauneyja.
Það var gert að friðlandi árið 1979. Fjallabak er bakhlið fjalla eða svæðið hinum megin fjalla. Svæðið er 47 ferkílómetrar og þekkt fyrir stórbrotna og einstæða náttúru. Svæðið er yfir 500 metra; fjöllótt og einkennist af eldvirkni, hverasvæðum, hraunum, ám og vötnum. Það er mjög litríkt og eru þar meðal annars bergtegundirnar ríólít, hrafntinna og móberg. Síðast gaus þar á 15. öld norður af Landmannalaugum. Gróður er af skornum skammti og takmarkast að mestu við ár og vötn.
Að Fjallabaki eru margar vinsælar gönguleiðir eins og Laugavegurinn sem liggur úr Landmannalaugum yfir í Þórsmörk. Skálar og tjaldsvæði innan Friðlandsins eru í Landmannalaugum, Landmannahelli og í Hrafntinnuskeri.
Árbók Ferðafélags Íslands árið 2010 fjallaði um Friðland að fjallabaki.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Friðland að Fjallabaki, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.