Forseti Þýskalands (þýska: Bundespräsident) er þjóðhöfðingi þýska sambandsríkisins.
Líkt og í mörgum öðrum þingræðisríkjum er forseti Þýskalands fremur valdalítill, en telst þó æðsti embættismaður þjóðarinnar. Forsetakjör í Þýskalandi fer fram á sérstökum kjörmannafundi sem skipaður er þingmönnum Sambandsþingsins og jafn mörgum fulltrúum kosnum af þingum sambandslandanna sextán. Núverandi forseti Þýskalands er Frank-Walter Steinmeier og er hann sá 12. í röðinni frá stofnun Sambandlýðveldisins árið 1949.
Á tíma Weimar-lýðveldisins og Þýskalands nasismans hét forsetaembættið formlega ríkisforseti (þýska: Reichspräsident).
Forseti | Embættistími | Stjórnmálaflokkur |
---|---|---|
Theodor Heuss | 1949-1959 | FDP |
Heinrich Lübke | 1959-1969 | CDU |
Gustav Heinemann | 1969-1974 | SPD |
Walter Scheel | 1974-1979 | FDP |
Karl Carstens | 1979-1984 | CDU |
Richard von Weizsäcker | 1984-1994 | CDU |
Roman Herzog | 1994-1999 | CDU |
Johannes Rau | 1999-2004 | SPD |
Horst Köhler | 2004-2010 | CDU |
Christian Wulff | 2010-2012 | CDU |
Joachim Gauck | 2012-2017 | - |
Frank-Walter Steinmeier | 2017- | SPD |
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Forseti Þýskalands, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.