Bjarni Pálsson

Bjarni Pálsson (fæddur 17.

maí 1719, dáinn 8. september 1779) var íslenskur læknir og náttúrufræðingur. Hann var fyrsti landlæknir Íslands.

Bjarni Pálsson
Minnismerki um Bjarna Pálsson við Nesstofu.
Bjarni Pálsson
Nesstofa
Bjarni Pálsson
Ferðabókin (pdf)

Ferill

Bjarni fæddist að Upsum á Upsaströnd við Dalvík. Foreldrar hans voru hjónin séra Páll Bjarnason prestur á Upsum og Sigríður Ásmundsdóttir. Bjarni missti föður sinn tólf ára að aldri og fluttist þá með móður sinni að Stað í Hrútafirði. Hann hóf nám í Hólaskóla 1734 en hætti vorið 1736 til að gerast fyrirvinna móður sinnar. Hann hóf þó nám að nýju síðar og lauk stúdentsprófi frá Hólaskóla 1745, þá 26 ára að aldri. Hann innritaðist í Kaupmannahafnarháskóla 1746 og lagði þar stund á læknisfræði og náttúruvísindi.

Bjarni lauk læknanámi í september 1759 fyrstur Íslendinga og var þá orðinn fertugur. Hann var skipaður fyrsti landlæknir Íslands 18. mars 1760 og bjó eftir það á Bessastöðum og síðan á Nesi við Seltjörn þar sem nú er Nesstofa á Seltjarnarnesi. Hann kenndi nokkrum mönnum læknisfræði og veitti sumum þeirra lækningaleyfi eftir að hafa prófað þá en aðrir sigldu til Kaupmannahafnar og luku þar læknanámi.

Kona Bjarna var Rannveig Skúladóttir (1742-1803), dóttir Skúla Magnússonar landfógeta. Sveinn Pálsson læknir skrifaði ævisögu Bjarna og var hún gefin út í Leirárgörðum árið 1800.

Ferðir Eggerts og Bjarna

Bjarni var einn af boðberum upplýsingarinnar á Íslandi. Á námsárum sínum 1750 og 1752-1757 ferðaðist hann um Ísland ásamt Eggerti Ólafssyni á sérstökum styrk frá danska ríkinu. Þá gengu þeir félagar m.a. á Heklu fyrstir manna svo vitað sé. Það var aðfaranótt 20. júní 1750 sem þeir stóðu á Heklutindi.

Afrakstur ferðalaganna um landið var Íslandslýsing, sem kölluð er Ferðabók Eggerts og Bjarna og kom út árið 1772 en hefur oft verið gefin út síðan.

Tenglar

Heimildir

  • Steindór Steindórsson frá Hlöðum. Íslenskir náttúrufræðingar. Reykjavík 1981.
  • „Um læknaskipun á Íslandi. Tímarit hins íslenzka bókmenntafélags, 11. árgangur 1890“.

Tags:

Bjarni Pálsson FerillBjarni Pálsson Ferðir Eggerts og BjarnaBjarni Pálsson TenglarBjarni Pálsson HeimildirBjarni PálssonLandlæknirNáttúrufræðingur

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

Helga ÞórisdóttirLandvætturMerik TadrosGormánuðurÓlympíuleikarnirMeðalhæð manna eftir löndumFelix BergssonFnjóskadalurJón Páll SigmarssonBúdapestSjómannadagurinnListi yfir íslensk póstnúmerBríet HéðinsdóttirEnglar alheimsins (kvikmynd)Krónan (verslun)JapanHallgrímur PéturssonEinar JónssonMiðjarðarhafiðAlþingiskosningarBaldurBotnlangiÞFljótshlíðLandsbankinnListi yfir markahæstu og leikjahæstu knattspyrnumennReykjanesbærNellikubyltinginRagnar loðbrókISBNMenntaskólinn í ReykjavíkJólasveinarnirHetjur Valhallar - ÞórPétur Einarsson (f. 1940)LýðræðiUngfrú ÍslandTékklandKeflavík, íþrótta- og ungmennafélagSöngkeppni framhaldsskólannaMannakornMarie AntoinetteCarles PuigdemontÞorskastríðinSöngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2024Listi yfir morð á Íslandi frá 1970–1999LeikurSvartahafListi yfir persónur í NjáluReykjavíkDóri DNAKorpúlfsstaðirSædýrasafnið í HafnarfirðiFóturJón Baldvin HannibalssonÞór (norræn goðafræði)ÁstandiðPóllandAladdín (kvikmynd frá 1992)Listi yfir útvarpsstöðvar á ÍslandiFiann PaulMiltaSteinþór Hróar SteinþórssonLaxMarokkóMannshvörf á ÍslandiTenerífe26. aprílXHTMLHæstiréttur ÍslandsJóhann SvarfdælingurKúlaNorræn goðafræðiRíkisútvarpiðGóaHarry Potter🡆 More