Abu Bakr Al-Baghdadi: Leiðtogi Íslamska ríkisins

Abū Bakr al-Baghdadi (arabíska: أبو بكر البغدادي; fæddur undir nafninu Ibrahim Awad Ibrahim al-Badri إبراهيم عواد إبراهيم علي محمد البدري السامرائي árið 1971; d.

27. október 2019) var leiðtogi salafíska vígahópsins íslamska ríkisins. Bandaríkin, Evrópusambandið og flest stök ríki líta á samtökin sem hryðjuverkahóp og á al-Baghdadi sem hryðjuverkaleiðtoga. Í júní árið 2014 kaus ráðgjafarráð samtakanna (Majlis-ash-Shura) að viðurkenna al-Baghdadi sem kalífa íslamska ríkisins.

Abu Bakr al-Baghdadi
أبو بكر البغدادي
Abu Bakr Al-Baghdadi: Leiðtogi Íslamska ríkisins
Mynd af al-Baghdadi í fangabúðunum Camp Bucca í Írak árið 2004.
„Kalífi“ íslamska ríkisins
Í embætti
7. apríl 2013 – 27. október 2019
EftirmaðurAbu Ibrahim al-Hashimi al-Qurashi
Persónulegar upplýsingar
Fæddur28. júlí 1971
Samarra, Írak
Látinn27. október 2019 (48 ára) Barisha, Sýrlandi
ÞjóðerniÍraskur
TrúarbrögðSúnní

Margt er á huldu um fortíð al-Baghdadi og sem leiðtogi hryðjuverkahópsins birtist hann mjög sjaldan opinberlega. Talið er að hann hafi útskrifast með doktorsgráðu í íslömskum fræðum úr Saddam-háskólanum í Bagdad. Vegna leyndarinnar sem hvílir yfir al-Baghdadi var hann stundum kallaður „sjeikinn ósýnilegi“. Hann vakti mikla athygli árið 2014 þegar myndband var birt af honum að predika í al-Nuri-moskunni í Mósúl í Ramadan-mánuði, stuttu eftir að íslamska ríkið hafði hertekið borgina. Í myndbandinu lýsti al-Baghdadi sjálfan sig trúarleiðtoga allra múslima heimsins og kallaði eftir stuðningi múslima um allan heim.

Að þessu myndbandi undanskildu lét al-Baghdadi aðallega á sér bera í hljóðupptökum til stuðningsmanna sinna. Tilkynningar og orðrómar bárust oft um að al-Baghdadi væri látinn eða illa særður en erfitt var að staðfesta þessa orðróma. Síðast sást al-Baghdadi í myndbandi sem birt var í lok apríl árið 2019. Myndbandið birtist eftir að Íslamska ríkið hafði glatað nær öllu landsvæði sínu í Sýrlandi og Írak en í því hét hryðjuverkaleiðtoginn áframhaldandi baráttu gegn vesturlöndum.

Frá árinu 2016 lofaði utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna 25 milljóna dollara verðlaunafé hverjum þeim sem byggi yfir upplýsingum sem gætu leitt til handtöku eða dauða al-Baghdadi.

Þann 27. október árið 2019 sprengdi al-Baghdadi sjálfan sig í loft upp til þess að forðast handtöku þegar sérsveit Bandaríkjahers réðst á fylgsni hans í Sýrlandi. Maður að nafni Abu Ibrahim al-Hashimi al-Qurashi tók við af Baghdadi sem leiðtogi og „kalífi“ samtakanna. Abu Ibrahim al-Hashimi al-Qurashi var einnig drepinn í árás Bandaríkjahers þann 3. febrúar 2022. Eftir dauða hans var Abu al-Hasan al-Hashimi al-Qurashi skipaður nýr kalífi samtakanna, en hann er eldri bróðir Abu Bakr al-Baghdadi.

Tilvísanir

Tags:

ArabískaBandaríkinEvrópusambandiðHryðjuverkKalífiÍslamska ríkið

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

VatnajökullHávamálSveitarstjórnarkosningar á Íslandi 2022Ástþór MagnússonJaðrakanForsetakosningar á Íslandi 1996GæsalappirElriKríaJohannes VermeerSilvía NóttHættir sagna í íslenskuAlbert Guðmundsson (fæddur 1997)PylsaÓlafur Ragnar GrímssonMorðin á SjöundáHeyr, himna smiðurAdolf HitlerGísli á UppsölumKeflavík, íþrótta- og ungmennafélagFlateyriSpánnMaðurEgill Skalla-GrímssonFáni SvartfjallalandsBerlínEinar BenediktssonEiður Smári GuðjohnsenBrúðkaupsafmæliSpóiFreyjaHarry S. TrumanJón Sigurðsson (forseti)UngverjalandSönn íslensk sakamálDaði Freyr PéturssonSanti CazorlaNorræn goðafræðiBleikjaFlóCharles de GaulleSkordýrSædýrasafnið í HafnarfirðiRauðisandurÚlfarsfellGarðar Thor CortesSöngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2024Listi yfir markahæstu og leikjahæstu knattspyrnumennHernám ÍslandsUppköstPóllandFuglafjörðurGuðni Th. JóhannessonMyndlista- og handíðaskóli ÍslandsSvavar Pétur EysteinssonSauðárkrókurÚtilegumaðurLjóðstafirJeff Who?Guðrún AspelundDimmuborgirTyrkjarániðTjörn í SvarfaðardalSnæfellsnesForsetningSteinunn Ólína ÞorsteinsdóttirVarmasmiðurDísella LárusdóttirÓnæmiskerfiRaufarhöfnHerra HnetusmjörFornafnJakob 2. EnglandskonungurHellisheiðarvirkjunÓlafsfjörðurGunnar HelgasonKári SölmundarsonAladdín (kvikmynd frá 1992)🡆 More