Hryðjuverk er umdeilt hugtak án nokkurrar almennt viðurkenndrar skilgreiningar.
Algengast er að hryðjuverk sé talið hver sú árás sem af ásetningi er beint gegn almennum borgurum til ógnunar sem framin er í þeim tilgangi að ná fram stjórnmálalegum eða öðrum hugmyndafræðilegum markmiðum. Um það er deilt hverjir fremji hryðjuverk (hvort t.d. ríki geti framið hryðjuverk) og að hverjum þau geti beinst (til dæmis hvort árás á hernaðarleg skotmörk geti verið hryðjuverk). Þarna geta komið upp árekstrar við önnur hugtök á borð við stríð og skæruhernað.
Í landslögum ríkja sem og í þjóðarétti hefur verið reynt að skilgreina hryðjuverk, til dæmis segir í íslensku hegningarlögunum í 100. grein m.a:
Þetta er mjög áþekkt skilgreiningu Sameinuðu þjóðanna á hugtakinu.
Hryðjuverkahugtakið hefur breytt nokkuð um mynd á síðari árum, til dæmis með tilkomu öflugra alþjóðlegra hryðjuverkasamtaka sem njóta mikillar hylli á ýmsum svæðum heims eða innan ákveðinna þjóðfélagshópa. Ýmis samtök múslímskra hryðjuverkasamtaka, svo sem al-Kaída og Hamas, hafa valdið miklum mannskaða víða um heim og njóta stuðnings ríkisstjórna í ýmsum löndum, svo sem Sýrlandi og Íran.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Hryðjuverk, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.