Aðgerðagreining er ákveðin grein af hagnýttri stærðfræði sem notar stærðfræðileg líkön, tölfræði og reiknirit til þess að finna bestu lausn eða góða lausn á erfiðum vandamálum; til dæmis að finna stystu akstursleið eða lágmarka biðtíma viðskiptavina.
Aðgerðagreining er vísindaleg aðferð sem stjórnendur geta notað til þess að ná markmiðum sínum.
Aðgerðagreining er oft nefnd í sambandi við bestun þó að í sumum viðfangsefnum aðgerðagreiningar séu ekki til þekktar aðferðir til að finna bestu lausn. Aðgerðagreining er nátengd iðnaðarverkfræði og iðnaðarverkfræðingar líta á aðgerðagreiningu sem mikilvægan hluta af sinni hæfni.
Þær helstu og mikilvægustu aðferðir sem eru notaðar í aðgerðagreiningu eru tölfræði, bestun, líkindafræði, biðraðafræði, leikjafræði, myndgreining, ákvarðana greining og hermun. Vegna flókinna útreikninga sem aðgerðagreiningin krefst hefur aðgerðagreining einnig sterk bönd við tölvunarfræði og þeir sem vinna við aðgerðagreiningu nota bæði sérhönnuð forrit og hilluforrit.
Helsta einkenni aðgerðagreiningar er að leitast við að meta skipulagsheildina í stað þess að einblína á ákveðna hluta hennar (þó það sé oft gert líka). Sá sem notast við aðgerðagreiningu við lausn nýs vandamáls þarf að ákvarða hvaða aðferð er mest viðeigandi að nota út frá eðli kerfisins, markmiði verkefnisins og tímaskorður og tölvugetu (computer power). Af þessari ástæðu er mannlegi þátturinn í aðgerðagreiningu mjög mikilvægur.
Dæmi um starfsemi þar sem notuð er aðferðafræði aðgerðagreiningar eru:
Mörg samtök eru starfrækt sem hafa aðgerðagreiningu sem viðfangsefni.
The International Federation of Operational Research Societies eru regnhlífarsamtök fyrir aðgerðagreiningu á alþjóðavísu. Samtök innan vébanda þeirra sem vert er að benda á eru:
Fyrirmynd greinarinnar var „Operational Research“ á ensku útgáfu Wiki. Sótt 9. febrúar 2009.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Aðgerðagreining, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.