Þjórsá: Lengsta á Íslands

Þjórsá er lengsta á Íslands, alls 230 km löng.

Hún er jökulá að uppruna sem á meginupptök sín í Hofsjökli og rennur í suður til sjávar vestan Þykkvabæjar. Í hana falla fjölmargar dragár og lindár. Þjórsá er sýslumörk Rangárvallasýslu og Árnessýslu og er sóttvarnarlína hvað varðar búfjárveikivarnir. Ennfremur er Þjórsá næstvatnsmesta á landsins með 363 rúmmetra á sekúntu eftir einungis Ölfusá sem hefur um 400.

Þjórsá
Þjórsá við Þverá í Gnúpverjahreppi
Þjórsá við Þverá í Gnúpverjahreppi
Uppspretta Hofsjökull
Árós Ströndin nálægt Þykkvabæ
Lengd 230 km
Meðalrennsli 310-360 m³/s
Vatnasvið 7.578 km²
Hnit 63°47′00″N 20°48′00″V / 63.7833°N 20.8°V / 63.7833; -20.8
Þjórsá: Merking, Samgöngur, Fossar
Þjórsá með Búrfell í bakgrunni.
Þjórsá: Merking, Samgöngur, Fossar
Þjórsárferja nærri Stórinúpi um 1900.

Merking

Orðið þjór merkir naut og er Þjórsá því Nautsá. Orðið þjór kemur nokkrum sinnum fyrir í fornritum, en lifir nú einungis í örnefnum. Í nágrannamálunum eru til samsvarandi orð: danska - tyr, sænska - tjur, latína - taurus, írska - tarbh. Íslendingar tóku upp úr írsku orðið „tarfur“, og hefur það ef til vill rutt orðinu „þjór“ úr málinu.

Samgöngur

Tvær brýr eru á ánni, önnur á þjóðvegi nr. 1 neðan við Þjórsártún og hin við Sandafell rétt neðan Sultartangavirkjunar. Gamla brúin við Þjótanda var tekin í notkun árið 1895 og endurgerð nokkru neðar árið 1949. Nýja brúin, sem leysti þá gömlu af hólmi, var tekin í notkun árið 2003 og er tæpur kílómetri á milli þeirra.

Nokkur vöð eru á ánni, þau helstu eru Nautavað við Þjórsárholt og Hagavað við bæinn Haga.

Gamla Sprengisandsleiðin lá inn Gnúpverjaafrétt og yfir Þjórsá á vaði á móts við Sóleyjarhöfða, sem er austan árinnar. Þarna vestan ár er fjallkofi fyrir fjallmenn Gnúpverja, sem kallast Bólstaður.

Fossar

Í Þjórsá eru margir fagrir fossar. Sé talið ofan frá er röðin eftirfarandi: Hvanngiljafoss (Kjálkaversfoss), Dynkur, Gljúfurleitarfoss, Tröllkonuhlaup, Þjófafoss, Minna-Núps flúðir, Búðafoss og Hestfoss sitt hvoru megin við Árnes og að lokum Urriðafoss.

Eyjar

Árnes og Hagaey eru meðal stærstu eyja í ánni. Eyjan Viðey (gengur einnig undir heitinu Minnanúpshólmi) hefur nýlega verið friðuð og er sérstök vegna gróskumikils birkiskógar. Traustholtshólmi er skammt upp frá ósum árinnar þar var samnefndur bær sem nú er kominn í eyði.

Fiskigengd

Miklar nytjar eru af veiði í Þjórsá en þar er einkum stunduð netaveiði. Í ánni lifa þær fisktegundir sem algengar eru í ám og vötnum landsins, lax, urriði, bleikja, hornsíli og áll. Flundra hefur einnig veiðst í Þjórsárósi. Í Þjórsá og þverám hennar er að finna einn af stærri laxastofnum landsins og góður stofn sjóbirtings gengur á vatnasvæðið. Þar eru einnig staðbundin bleikja og urriði. Mestur hluti villtra laxa sem ganga á vatnasvæðið er alinn upp í Þjórsá sjálfri. Selir ganga upp í Þjórsá, allt upp að Urriðafossi, til lax- og silungsveiða.

Virkjanir

Í Þjórsá og þverám hennar Tungnaá og Köldukvísl eru sjö vatnsaflsvirkjanir í eigu Landsvirkjunar: tvær Búrfellsstöðvar, Sultartangastöð, Hrauneyjafossstöð, Sigöldustöð, Vatnsfellsstöð og Búðarhálsvirkjun. Á teikniborðinu eru þrjár til viðbótar; Hvammsvirkjun, Holtavirkjun og Urriðafossvirkjun.

Tilvísanir

Heimildir

Tengill

Tags:

Þjórsá MerkingÞjórsá SamgöngurÞjórsá FossarÞjórsá EyjarÞjórsá FiskigengdÞjórsá VirkjanirÞjórsá TilvísanirÞjórsá HeimildirÞjórsá TengillÞjórsáHofsjökullJökuláKmRangárvallasýslaSjórÁ (landform)ÁrnessýslaÍslandÖlfusáÞykkvibær

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

WrocławSigmundur Davíð GunnlaugssonSnjóflóðið í SúðavíkHáskóli ÍslandsFyrri heimsstyrjöldinBerlínarmúrinnBroddgölturLionel MessiHættir sagna í íslenskuUShrek 2Guido BuchwaldÞingkosningar í Bretlandi 2010KárahnjúkavirkjunÁHrafn1905Guðni Th. JóhannessonSpurnarfornafnÍsafjörðurGoogleSýrlenska borgarastyrjöldinSeinni heimsstyrjöldinGreinirAuðunn BlöndalSumardagurinn fyrstiLandselurKaupmannahöfnÍraksstríðiðSvissÍslenska þjóðfélagið (tímarit)GrænlandÍsland í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva22. marsGrikklandÍslensk sveitarfélög eftir mannfjöldaBrennu-Njáls sagaEiginfjárhlutfallAristótelesNetflixGullFæreyskaHöggmyndalistÁstandiðCarles PuigdemontLundiMöndulhalliHugtök í nótnaskriftÓslóEldgígurGarðurLoðnaTíu litlir negrastrákarFlatey (Breiðafirði)Ásgeir ÁsgeirssonListi yfir íslensk eiginnöfn karlmannaHús verslunarinnarDOI-númerKuiperbeltiÍslandEMacListi yfir landsnúmerMorð á ÍslandiEyjaálfaForseti ÍslandsTeboðið í BostonStrumparnirHesturFaðir vorSaga GarðarsdóttirRíkissjóður ÍslandsHrafna-Flóki VilgerðarsonÞýskaFormúla 1San FranciscoYKvenréttindi á Íslandi🡆 More