Vilhjálmur, prinsinn af Wales og hertoginn af Cornwall, Cambridge og Rothesay (f.
21. júní 1982) er eldri sonur Karls 3. Bretakonungs og Díönu heitinnar prinsessu.
Vilhjálmur, prinsinn af Wales | |
---|---|
Fæddur | William Arthur Philip Louis 21. júní 1982 St. Mary Hospital, London |
Titill | Prinsinn af Wales |
Maki | Katrín, prinsessan af Wales |
Börn | Georg prins Karlotta prinsessa Lúðvík prins |
Foreldrar | Karl 3. Bretakonungur Díana prinsessa |
Vilhjálmur er fyrstur í erfðaröðinni að bresku krúnunni. Hann hefur stundað nám við fjórar menntastofnanir í Bretlandi og lauk m. a. háskólaprófi frá St. Andrews-háskóla árið 2005. Á námsárum sínum við St. Andrews kynntist Vilhjálmur Kate Middleton sem var einnig nemandi í skólanum en þann 29. apríl 2011 voru þau gefin saman í hjónband í Westminster Abbey. Þau hjón eiga þrjú börn Georg prins, Karlottu prinsessu og Lúðvík prins.
Þá hefur Vilhjálmur starfað innan Breska hersins en hann hefur til að mynda starfað sem þyrluflugmaður.
Vilhjálmur hlaut titilinn prins af Wales þann 9. september 2022, daginn eftir að faðir hans varð konungur Bretlands.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Vilhjálmur Bretaprins, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.