Vala Flosadóttir (f.
Reykjavík 16. febrúar 1978) er íslensk frjálsíþróttakona og keppti í stangarstökki. Árið 2000 varð hún í þriðja sæti á Ólympíuleikunum í Sydney með stökki upp á 4,5 metra, sem jafnframt er persónulegt met.
Árið 1998 setti Vala tvívegis heimsmet í stangarstökki innanhúss og hún setti einnig fimm unglingaheimsmet á árunum 1995-1997. Hún varð Evrópumeistari í stangarstökki innanhúss 1996, en það var í fyrsta skipti sem keppt var í stangarstökki kvenna á stórmóti, og hafnaði í þriðja sæti á Evrópumeistaramótinu árið 1998. Hún vann Evrópumeistaramót 22 ára og yngri 1999 og varð önnur á evrópska unglingameistaramótinu 1997.
Vala hætti keppni árið 2004. Hún var tekin inn í heiðurshöll ÍSÍ árið 2012.
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Vala Flosadóttir, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.