Vötnin Miklu: Fimm stór stöðuvötn í Norður-Ameríku

Vötnin miklu er samheiti yfir fimm stór stöðuvötn á eða við landamæri Kanada og Bandaríkjanna.

Vötnin eru stærsti hópur ferskra stöðuvatna á jörðunni og mynda stærsta ferskvatnskerfi í heimi.

Vötnin Miklu: Fimm stór stöðuvötn í Norður-Ameríku
Gervihnattamynd af Vötnunum miklu.
Vötnin Miklu: Fimm stór stöðuvötn í Norður-Ameríku
Kort af Vötnunum miklu með nöfn þeirra merkt inn á.

Vötnin miklu eru frá vestri til austurs:

Á milli Húronvatns og Erievatns er sjötta vatnið, sem er hluti vatnakerfisins, en er ekki talið til stóru vatnanna vegna smæðar sinnar og heitir Lake St. Clair.

Á milli vatnanna renna ár með meginstraumstefnu frá vestri til austurs og að lokum út í Atlantshafið. Þær eru eftirtaldar:

  • St. Mary's River - rennur úr Miklavatni í Húronvatn
  • St. Clair River - rennur úr Húronvatni í St. Clair vatn
  • Detroitá (Detroit River) - rennur úr St. Clair vatni í Erievatn
  • Níagaraá með Níagarafossum - rennur úr Erievatni í Ontariovatn
  • Saint Lawrence fljót (Saint Lawrence River) - rennur úr Ontariovatni í Atlantshaf.

Að vötnunum miklu liggja eftirtalin fylki: Ontariofylki í Kanada, og Bandaríkjamegin Minnesota, Wisconsin, Michigan, Illinois, Indiana, Ohio, Pennsylvania og New York.

Í vötnunum miklu eru um það bil 35 þúsund eyjar. Þeirra á meðal eru eyjarnar Manitoulin eyja í Húronvatni, sem er stærsta eyja í stöðuvatni á jörðunni, og Isle Royale í Miklavatni, sem er stærsta eyjan í stærsta stöðuvatninu. Hvor þessara eyja um sig hefur síðan fjöldamörg stöðuvötn.

Vötnin miklu eru mikilvægar samgönguæðar og fara miklir flutningar eftir þeim með skipum. Auk þess eru þau gífurlegt ferskvatnsforðabúr og hafa mikil temprandi áhrif á loftslag með því að draga úr sumarhitum og vetrarfrostum.

Tags:

BandaríkinFerskvatnJörðinKanadaLandamæriSamheitiStöðuvatn

🔥 Trending searches on Wiki Íslenska:

HljómskálagarðurinnKeila (rúmfræði)Ólafur Ragnar GrímssonSoffía JakobsdóttirParísForsetakosningar á Íslandi 2024Spilverk þjóðannaTjörn í SvarfaðardalKýpurBotnlangiVikivakiSverrir Þór SverrissonSkjaldarmerki ÍslandsISO 8601FallbeygingForsetakosningar á ÍslandiMáfarStórar tölurUngfrú ÍslandÍslenski hesturinnRonja ræningjadóttirHannes Bjarnason (1971)HákarlÁstralíaOkjökullEldgosin við Sundhnúksgíga 2023–2024Erpur EyvindarsonListi yfir lönd eftir mannfjöldaSamningurNafnhátturListi yfir þjóðvegi á ÍslandiHeilkjörnungarTékklandKorpúlfsstaðirVestfirðirEgill Skalla-GrímssonJafndægurJóhann SvarfdælingurNorræna tímataliðSilvía NóttMiltaFyrsti maíBarnafossJóhann Berg GuðmundssonReynir Örn LeóssonBleikjaGylfi Þór SigurðssonStúdentauppreisnin í París 1968Davíð OddssonIcesaveListi yfir fylki og yfirráðasvæði Bandaríkjanna eftir stærðUngverjalandAlþingiskosningar 2021XHTMLMontgomery-sýsla (Maryland)Eiríkur Ingi JóhannssonÞB-vítamínHrossagaukurLjóðstafirListi yfir íslenska tónlistarmennKalda stríðiðSeljalandsfossSigrúnUnuhúsRíkisútvarpiðHrafnÞjóðleikhúsiðÚtilegumaðurÓfærufossSvavar Pétur EysteinssonHættir sagna í íslenskuIngvar E. Sigurðsson🡆 More