Sambesí eða Sambesífljót er fjórða lengsta fljót í Afríku og það stærsta sem rennur í Indlandshaf.
Vatnasvið þess er 1.329.965 km² að stærð, eilítið minna en helmingur vatnasviðs Nílar. Sambesí er 2.750 km langt. Það á upptök sín í Sambíu, rennur svo gegnum Angóla og síðan eftir landamærum Simbabve og Sambíu til Mósambík þar sem það rennur út í Indlandshaf.
Í Sambesí eru Viktoríufossar, eitt af stærstu vatnsföllum heims, en aðrir stórir fossar eru Chavumafossar við landamæri Sambíu og Angóla, og Ngonyefossar í vesturhluta Sambíu. Allt fljótið er einungis brúað á fjórum stöðum: við Chinyingi, Viktoríufossa, Chirundu og Tete.
Tvær aðal vatnsaflsvirkjanir í fljótinu eru Kariba stíflan og Cahora Bassa stíflan. Lokið var við Kariba stífluna 1959. Hún er 128 m há og 579 m breið. Lónið sem myndaðist er um 280 km langt og um 5400 km² að stærð. Stíflan er á landamærum Sambíu og Simbabve framleiðir um 16 hundruð mw. Cahora Bassa stíflan er neðar í fljótinu í Mósambík og lokið var við að byggja hana 1974. Hún er 171 m á hæð og lónið um 2700 km² að stærð; framleiðir um 2000 mw. Auk þessara vatnsaflsvirkjanna er tvær minni virkjanir í fljótinu. Umfang árósa Sambesí fljótsins er um helmingur af því sem þeir voru áður en stíflunar voru byggðar. Áður en stíflurnar voru byggðar var meðal lágmarksrennsli á sekúndu um 500 m³ og hámarks meðalrennsli um 6000 m³. Þetta hefur leitt til þess að í fyrsta lagi að fæða og viðkoma fiska, fugla og annarra dýra hefur raskast verulega. Í öðru lagi hefur graslendi fyrir kýr og villta grasbýta minnkað og í þriðja lagi hefur landbúnaður og fiskveiðar raskast. [1]
This article uses material from the Wikipedia Íslenska article Sambesí, which is released under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 license ("CC BY-SA 3.0"); additional terms may apply (view authors). Efnið er aðgengilegt undir CC BY-SA 4.0 nema annað komi fram. Images, videos and audio are available under their respective licenses.
®Wikipedia is a registered trademark of the Wiki Foundation, Inc. Wiki Íslenska (DUHOCTRUNGQUOC.VN) is an independent company and has no affiliation with Wiki Foundation.